fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Segir að skorað hafi verið á hann að bjóða sig fram til forseta -„Ég er of truntulegur til að gegna svona embætti“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 7. apríl 2024 09:30

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og lögmaður segir gamlan kollega sinn og félaga hafa gert honum þann óleik í beinni útsendingu á Bylgjunni að skora á hann í framboð til forseta Íslands. 

„Áhrifamáttur fjölmiðla er mikill og nú hellast yfir mig áskoranir. Af því að það hentar mér illa að liggja undir feldi dögum saman þá ætla ég ekki að bíða með tilkynningu. Hún er sú að ég ætla ekki í framboð til forseta Íslands,“ segir Brynjar í færslu á Facebook og segir ástæðurnar fyrir að bjóða sig ekki fram þessar helstar:

„Ég er alþýðustrákur úr Hlíðunum, sem breyttist í götustrák eftir að ég byrjaði í stjórnmálum. Allt snobb, sérstaklega menningarsnobb á illa við mig, sem og hvers kyns tildur. Ég er í grunninn mannafæla og líður best í felum bak við lyklaborð. Ég hef fallið í öllum kúrsum í fágunarskóla Soffíu og skortir allar fínessur, sérstaklega þegar kemur að framkomu og klæðaburði. Ég er of truntulegur til að gegna svona embætti.

Pólitískir andstæðingar mínir, oft nefnt góða fólkið, hefur haldið því fram að mig skorti alla samkennd og mannúð og manngæska sé mér framandi.  Ég vil nú mótmæla því og fullyrði að þeir sem þekkja mig taki undir þau mótmæli. En meginástæðan fyrir þvi að ég ætla ekki í framboð er sú að ég vil halda hjónabandinu gangandi eitthvað lengur,“ segir Brynjar og segir nær að einstaklingar skori á eiginkonu hans að bjóða sig fram til forsetaembættisins: 

„Það væri miklu nær að menn skoruðu á Soffíu í framboð. Hún hefur allt að bera sem prýtt gæti einn forseta. Hún hefur aldrei gert neitt af sér í lífinu, ekki einu sinni farið yfir á rauðu gönguljósi. Hún er vel að sér um hlutverk og skyldur forseta. Hún er með diplómu úr öllum bestu fágunarskólum heims. Að auki er hún afskaplega hlýleg og elskuleg og hvers manns hugljúfi. Ég vil samt ekki sjá svipinn á henni þegar hún kemst að þessari færslu.“

Brynjar segist einnig ekki ætla að lýsa yfir hvern hann styðji til forsetaembættisins:

„Ég ætla ekki að lýsa yfir stuðningi við ákveðinn frambjóðanda, það yrði bjarnargreiði. Ætla samt að vona að þessar kosningar verði ekki eins og hver önnur Júróvisjónkosning þar sem umbúðirnar skipta meira máli en innihaldið.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
Fréttir
Í gær

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump