„Ekki að það tengist ósk Norðanmanna um að Akureyri verði borg, en þá var ég að velta fyrir mér hvort Íslendingar eigi ekki að fara fram á að land sitt verði skilgreint sem heimsálfa,“ sagði Gunnar Smári og benti á að Íslandi væri á milli Ameríku og Evrópu og tilheyri landfræðilega báðum meginlandsflekunum – og þar af leiðandi hvorugum að fullu.
Gunnar Smári sér mikinn ávinning ef þetta verður að veruleika.
„Ávinningurinn væri til dæmis að við gætum stofnað sérsamband Íslandsríkja innan FIFA og krafist þess að þau fái fast sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Það lið sem sigraði Íslandsmót fengi líka sjálfkrafa rétt til að spila í álfukeppni félagsliða. Meðan ég skrifa þetta sé ég mörg tækifæri opnast sem eru lokuð fyrir okkar kúgaða land, sem er í raun álfa en fær það ekki viðurkennt.“
Óhætt er að segja að margir taki undir þessa hugmynd Gunnars Smára.
„Líst vel á þessa hugmynd og nú er bara að fara að vinna í þessu,“ segir einn og annar bætir við: „Fín hugmynd.“
Sigurjón M. Egilsson, fjölmiðlamaður og bróðir Gunnars Smára, segir: „Setja í gang.“
Aðrir eru þó efins og segir einn: „Held það sé ekki á stórmennskubrjálæði landans bætandi.“