Í nótt dró verulega úr krafti og hraunrennsli eldgossins sem hófst í gærkvöldi á Reykjanesskaga. Slokknað hefur í kvikustrókum og allt eins er búist við því að það gæti hætt seinna í dag.
Þetta kemur fram á facebook hópnum Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands, þar sem fylgst er grannt með jarðhræringum sem þessum.
„Gossprungan var upprunalega áætluð 3500 metra löng. Nú gýs á tveimur sprunguhlutum sem samanlagt eru nokkur hundruð metra langir. Hraun rennur áfram áleiðis að Grindavík en þar hefur hrauntungan staðnað um 750 m frá Suðustrandarvegi. Þá rann hraun yfir Grindavíkurveg um miðnætti en náði ekki jafn langt til vesturs og hraunið sem skemmdi lögnina 8. febrúar,“ stendur í færslu hópsins.
Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni, sagði í útvarpsviðtali hjá Rás 2 í morgun að hún gerði ráð fyrir að gerður yrði nýr Suðustrandarvegur. Það er að hann yrði færður út fyrir það svæði sem verið er að vinna við.
Einnig að stefnt væri að því að leggja nýjan Grindavíkurveg yfir það hraun þegar það er orðið tímabært.
Eins og er er að eins hægt að komast til Grindavíkur um Nesveg. Sá vegur er laskaður en ökufær. Nesvegur þolir hins vegar ekki að vera eini vegurinn til Grindavíkur til lengdar ef það á að flytja mikið af stórum og þungum farartækjum um hann.
Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af innviðunum. Auk veganna er grannt fylgst með háspennulögnum, ljósleiðaralögnum og kaldavatnslögnum sem eru nálægt hraunrennslinu. Hins vegar hefur farið nokkur vinna við að fergja þessar lagnir til að verja þær fyrir hraunflæði.
Þá hefur HS Orka veitt kaldara vatni en venjulega um æðina að Njarðvík svo hún kæli sig innan frá ef hraun fer yfir.
Verktakar sem unnu á svæðinu í nótt hafa nú verið sendir heimi í hvíld. Í samtali við RÚV sagði Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna að búið væri að gera það sem þarf að gera við Svartsengi og svæðinu um kring.