Pavel Ermolinskij er kominn í veikindaleyfi sem þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfuknattleik. Tindastóll sendi frá sér tilkynningu nú fyrir stundu þar sem greint var frá þessum tíðindum en Svavar Atli Birgisson mun taka tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið.
Samkvæmt heimildum DV er alls óvíst hvenær, og hreinlega hvort, Pavel snýr aftur til starfa hjá félaginu.
Lið Tindastóls er ríkjandi Íslandsmeistari en Pavel, sem er 37 ára gamall, tók við þjálfun liðsins í janúar í fyrra og átti stóran þátt í að landa fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins. Titilvörnin hefur þó gengið brösuglega en liðið er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og situr sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar með 20 stig eftir 19. umferðir. Tveimur stigum á undan Hetti og Stjörnunni sem eru í 8-9. sæti. Átta efstu liðin komast áfram í úrslitakeppnina.