Eins og DV greindi frá í gærkvöld vekur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu athygli á frétt á heimasíðu Interpol þar sem lýst er eftir íslenskum karlmanni, Pétri Jökli Jónassyni, 45 ára gömlum.
Eftirlýsingin er birt að beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er tilkomin vegna tilraunar til innflutnings á tæplega 100 kg af kókaíni frá Brasilíu til Íslands.
Þau sem geta veitt upplýsingar um Pétur Jökul Jónasson, ferðir hans eða dvalarstað, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri i tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.
Lögregla hefur staðfest að tilraunir hennar til að hafa uppi á Pétri Jökli tengist máli sem mikið var til umfjöllunar á árunum 2022 og 2023, en um er að ræða stærsta kókaínmál sögunnar og snerist um tilraun til innflutnings á rétt tæplega 100 kílóum af kókaíni frá Brasilíu. Lögregluyfirvöld höfðu veður af glæpnum og voru efnin haldlögð í Rotterdam í Hollandi, þar sem flutningaskipið sem lagði upp frá Brasilíu hafði viðkomu, og skipt út fyrir gerviefni.
Fjórir menn voru sakfelldir í málinu og hlutu þunga dóma. Þetta voru þeir Páll Jónsson, sem hlaut tíu ára fangelsi, Birgir Halldórsson fékk átta ára fangelsi, Daði Björnsson fékk sex og hálfs árs fangelsi, og Jóhannes Páll Durr hlaut sex ára fangelsi.
Mennirnir fjórir höfðu lítið sem ekkert gerst brotlegir við lög fyrr, svo vitað væri. Þótti ljóst af ákæru málsins, sem og allri málsmeðferð, að þeir voru ekki höfuðpaurar í málinu.
Sá sem hlaut þyngsta dóminn, Páll Jónsson timbursali, var 67 ára gamall er dómur féll yfir honum. Efnin voru falin í trjádrumbum sem Páll lét flytja til landsins í gegnum fyrirtæki sitt, Hús og Harðviður, sem staðsett var í Hafnarfirði.
Páll var óvenjulegur sakborningur í svo alvarlegu og umfangsmiklu máli, en hann hafði ekki áður komið við sögu lögreglu. Í einum af mörgum fréttum DV um málið segir:
„Páll sker sig frá hinum sakborningunum þar sem hann er miklu eldri, 67 ára gamall. Hann er fjölskyldumaður og hefur engan sakaferil að baki. Hann er ekki við góða heilsu og lýsti því í vitnaleiðslum að sex mánaða einangrunarvist hefði leikið hann grátt. Er hann kvaðst eingöngu hafa haft vitneskju um magn upp á sex kíló af kókaíni var hann minntur á að hann hefði játað í skýrslutökum hjá lögreglu vitneskju um miklu meira magn. Sagði hann þá að þar hefði rannsóknarlögreglumaður beitt sig lúabrögðum. Sá maður hefði yfirheyrt sig síðla morguninn eftir að hann var handtekinn. Orðrétt sagði Páll meðal annars þetta um framgöngu lögreglunnar á þessum tímapunkti:
„Svo ellefu um morguninn þarna fimmta þá kemur maður inn í klefa til mín voða léttur á lund. Talar eins og hann hafi þekkt mig til fjölda ára. Hann segist heita Kalli og vera stjórnandi þessarar rannsóknar. Biður mig að koma niður fyrir myndatöku og fingraför. Þar eru tveir menn. Kalli biður mig að koma afsíðis og tala við sig. Þá byrjar hann á þessari sögu minni, að hann viti allt um mig og mína. Viti það að ég hafi orðið fyrir miklum áföllum, viti það að ég sé alkóhólisti, viti minn þátt í málinu, samvinna væri mér til hagsbóta þá. Mér er þetta svo minnistætt. Þú veist hvað þetta er mikið segir hann, ég segi nei. Fimmtíu kíló plús segir hann, hvað áttiru að fá fyrir þetta? Ég segi að það hafi aldrei verið talað um það. Kalli segir þrjátíu milljónir, ætli það ekki, þarna var ég í andlegu þroti. Svo er mér hent aftur í klefann. Þetta heitir að sparka í liggjandi mann, það er mín túlkun. Síðan hef ég aldrei séð þennan mann. Ég var í andlegu sjokki, hent inn í einangrun. – Fimmtíu kíló og síðan voru þetta orðin hundrað. Ég vissi ekki hvað var að gerast.“
Páll gagnrýndi harðlega að hann hafi verið látinn dúsa í gæsluvarðhaldi í sex mánuði, þar af mestan hlutann í einangrun, vegna haldlagðra gerviefna, en lögreglumenn í Rotterdam skiptu á efnunum þar fyrir gerviefni. Kókaínið kom því í raun aldrei til Íslands heldur gerivefni sem því hafði verið skipt út fyrir:
„Mér finnst þetta orðið ansi erfitt fyrir mig. Með þessar einangranir sem ég hef verið í hálft ár. Á grundvelli almannahagsmuna, þessi fíkniefni sem voru í þessum gámi, þau eru ekki til, ég veit ekki hvaða ógn ætti að stafa af mér.“
Páll sagðist lítið hafa fengið að vita um fíkniefnin sem hann var látinn taka þátt í að smygla. Áður hefði hann átt heiðarleg viðskipti við einn sakborninga, Birgi Halldórsson, vegna innflutnings á efni í hús. Ekkert hafi verið saknæmt við þann innflutning. Annan sakborning, Jóhannes Pál Durr, þekkti hann eingöngu í gengum samskipti í tengslum við þetta mál. Sakborninginn Daða Björnsson þekkti hann hins vegar ekki neitt. Birgir hefði kynnt hann fyrir Jóhannesi. Jóhannes hefði ekki upplýst hann um áform um innflutning á kókaíni fyrr en áætlanir voru langt komnar.
Páll segir að á þeim tímapunkti þegar hann lét til leiðast og samþykkti smygl á sex kílóum af kókaíni með trjádrumbum sem hann flutti inn, þá hafi hann verið í andlegu þroti vegna áfalla í fjölskyldu. Sonur hans lést, tengdamóðir hans lést og sonur eiginkonu hans veiktist alvarlega og þurfti að undirgangast líffæraskipti:
„Það er þannig að einn sonur minn hann deyr 2. mars árið 2021. Tengdamóðir mín deyr sama ár í maí. Svo veikist einn sonur konu minnar mjög hastarlega og var alveg frá og fór í líffæraskipti. Allt þetta tekur krafta. Þetta var bara svona, ég var búinn að gefast upp.“
Hann segist ennfremur ekki hafa fengið fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem hann mátti dúsa í sex mánuði, lengst af í einangrun:
„Ég greindist með blóðsjúkdóm 2014. Ég komst yfir það en hann er augljóslega að taka sig upp aftur. Ég fæ marbletti, síðast þegar ég var handjárnaður þá var ég allur blár á hendinni eftir handjárnin. Það er ekki tekið tillit til neins.“ Segir hann að honum hafi verið bent á heilsugæsluna á Hólmsheiði en hún sé mjög takmörkuð.
Páll gekkst við því að hafa fengið allan kostnað við innflutninginn greiddan í reiðufé. Hann viðurkennir að það hafi hringt viðvörunarbjöllum í huga hans. Hann sagði um þetta:
„Það vakti bjöllur en þetta voru allt peningar sem komu beint úr banka, sléttir og fínir í bunkum. Ég lagði þetta beint inn á fyrirtækið og breytti út samkvæmt fylgiskjölum. Allir þeir peningar sem ég innti af hendi runnu eingöngu til efniskaupa, það er að segja timbur og tryggingar. Þó kaupverðið, svokallað fokverð sé kannski 30 þúsund dollarar frá framleiðanda og svo koma öll gjöld ofan á það. Það margfaldast.“
Páll sagði ennfremur: „Ég vil koma því á framfæri, það sem ég er ákærður fyrir, þá er ég ákærður fyrir sextán milljónir, eitthvað slíkt. Til fíkniefnakaupa og til einkanota. Þetta er bara alrangt. Í fyrsta lagi hef ég engin sambönd við einhverja undirheima, hvorki hér heima né í Brasilíu.““
Páll sagðist ekki þekkja til þeirra höfuðpaura málsins. Sú spurning vaknar hvort hinn eftirlýsti Pétur Jökull Jónasson sé einn þeirra. Pétur Jökull á langan brotaferil að baki. Í frétt RÚV segir:
„ Á vef héraðsdómstólanna má finna þrjá dóma yfir honum, þann fyrsta frá 2007. Þá var Pétur Jökull dæmdur til sektargreiðslu fyrir vörslu fíkniefna. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi 2010 fyrir smygl á 1,6 kílóum af kókaíni frá Spáni til Íslands. Ári síðar var hann dæmdur fyrir rán og fékk fimm mánaða dóm.
Meðal þess sem Pétur Jökull hefur fengist við um ævina er tónlist. Hann var um skeið hljómborðsleikari í Dr. Mister Mister Handsome.“