Í tilkynningu sem Almannavarnir sendu frá sér rétt fyrir hádegi kemur fram að leit sé hafin að biluninni og reynt verður að gera við hana sem fyrst.
„Réttast þótti í stöðunni að grafa niður á bilunina frekar en að leggja nýja lögn yfir hraunið,“ segir í tilkynningunni.
Tekið er fram að það sé mikil áskorun fyrir almannavarnakerfið að halda uppi hita í húsum í Grindavík.
„Til að koma vatni um hitakerfi húsanna við þær aðstæður sem uppi hafa verið síðustu vikur og mánuði, breyttu píparar á vegum Almannavarna stillingu þrýstijafnara í inntaksgrindum og lokuðu fyrir neysluvatn og hleyptu vatni af þeim til öryggis. Þetta var talið mikilvægt að gera því það er nánast ómögulegt að tryggja eðlilega vatnsnotkun, því smávægileg breyting á stillingu þrýstijafnara eða smávægileg breyting í þrýstingi í dreifikerfinu getur þýtt að annað hvort hætti rennsli um hitakerfi húsanna alveg eða þá að rennslið stóraukist,“ segir í tilkynningunni.
Vegna þessa er mikilvægt að húseigendur sem fara inn í húsin sín í Grindavík hafi eftirfarandi í huga.
Píparar á vegum Almannavarna lokuðu gluggum til að draga úr kælingu húsanna og mikilvægt er að húseigendur loki gluggum aftur þegar þeir yfirgefa íbúðir.