Í færslunni sést Joe Biden með laseraugu og skælbrosandi og með fylgir textinn: „Nákvæmlega eins og við skipulögðum.“
Just like we drew it up. pic.twitter.com/9NBvc5nVZE
— Joe Biden (@JoeBiden) February 12, 2024
Færslan er túlkuð sem svar við samsæriskenningum, sem hafa farið mikinn, um að Biden og Demókratar hafi átt hlut að máli varðandi Ofurskálina. Samkvæmt samsæriskenningum hægrimanna þá réðu Demókratar því að Kansas City Chiefs sigruðu San Francisco 49ers í leiknum og að þeir hafi notið stuðnings söngkonunnar Taylor Swift í þessu.
Ástæðan fyrir því að Taylor Swift er dregin inn í þetta er að hún er unnusta Travis Kelce sem leikur með Kansas City Chiefs. Að mati hægrimanna gengur samsærið út á að tryggja Biden áframhaldandi setu í Hvíta húsinu.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa nýlega umfjöllun DV.is um þessa samsæriskenningu.
Klikkuð samsæriskenning um vinsælustu tónlistarkonu heims breiðist út meðal stuðningsmanna Trump