Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Daníel Loga Matthíassyni, en hann er 23 ára gamall.
Síðast er vitað um ferðir hans í Krónunni á Fiskislóð úti á Granda, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni, en tímasetning á því atviki er ekki gefin upp. Ennfremur segir:
„Daníel Logi er með dökkt krullað sítt hár bundið í hnút. Hann er klæddur í svartri úlpu, hvítri rúllukragapeysu, ljósbrúnum buxum og svörtum skóm. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Daníels Loga eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.“