Sprungan sem gýs úr liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells og rennur hraun mestmegnis til vesturs á þessu stigi.
Ármann var í viðtali við RÚV í morgun þar sem hann sagði að gosið gæti náð hámarki á næstu klukkutímum. Tók hann undir með kollega sínum Þorvaldi Þórðarsyni sem sagði að reynt gæti á varnargarðana sem reistir voru við Svartsengi.
„Hraunið heldur sér uppi á heiðinni og getur kannski sett smá þrýsting á varnargarðana í Svartsengi,“ sagði Þorvaldur við RÚV í morgun. Þorvaldur tók þó fram að miðað við að gjósi á þessum slóðum gæti staðsetningin eiginlega ekki verið betri.
Þorvaldur sagðist einnig eiga von á því að gosið standi ekki lengi yfir og verði jafnvel lokið eftir 80 klukkustundir, eða 2-4 daga.
Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur sagði í fréttum RÚV klukkan 8 að líklegasta sviðsmyndin væri sú að gosið stæði stutt yfir. Þó væri ekki hægt að útilokað að það opnaðist rás sem næði dýpra og þar með yrði kvikuflæði jafnara. „Það er enn aflögun í gangi en við þurfum bara að bíða og sjá. En auðvitað er líklegast að þetta verði eins og við höfum séð áður.