Í tilkynningu frá Nóa Síríus kemur fram fyrirtækið hafi ákveðið með tilliti til neytendaverndar að innkalla pakkningar af Nóa Kroppi, 200g , vörunúmer 11663 með best fyrir dagsetningunni 28.05.2025.
Komið hafi í ljós við framleiðslu á Nóa Kroppi 200g, að aðrar súkkulaðihúðaðar vörur hafi blandast saman við í pökkun. Það hafi ollið því að þessi framleiðslulota af Nóa Kroppi innihaldi heslihnetur, sem sé þekktur ofnæmis- og óþolsvaldur. Neytendur með óþol eða ofnæmi fyrir heslihnetum séu varaðir við að neyta vörunnar en varan sé fullkomlega örugg til neyslu fyrir þá sem þola heslihnetur.
Fyrirtækið hafi þegar tilkynnt heilbrigðisyfirvöldum um innköllunina og komið upplýsingum á framfæri til söluaðila um að viðkomandi vara verði tekin úr sölu og sé ný framleiðslulota af Nóa Kroppi 200g væntanleg í verslanir.
Nói Síríus biður þá sem keypt hafa Nóa Kropp 200g að athuga dagsetninguna á umbúðunum og koma pokunum til fyrirtækisins eða farga vörunni ef við á. Nói Síríus biðst innilegrar velvirðingar á óþægindum sem þetta kunni að valda.