Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur birt í Lögbirtingablaðinu fyrirkall og ákæru gegn 37 ára gömlum manni frá Hafnarfirði.
Manninum er gefið að sök að hafa miðvikudaginn 15. mars árið 2023 farið inn í anddyri Sundlaugarinnar á Akureyri og stolið skóm úr skóhillu.
Í annan stað er maðurinn sakaður um að hafa haft í fórum sínum 0,33 grömm af heróíni en efnið fannst við leit á honum á lögreglustöðinni á Akureyri eftir handtöku.
Fáheyrt er að heróín finnist á Íslandi og hefur það lengi ekki talið vera í umferð hér.
Manninum er gert að mæta fyrir Héraðsdóm Norðurlands eystra á Akureyri þann 12. mars næstkomandi.
DV hefur áður fjallað um þennan heróínfund. Samkvæmt þeirri frétt var manninum gefinn kostur á að losna frá málinu með því að greiða 75.000 krónur í sekt. Samkvæmt heimildum DV gerði maðurinn sér enga grein fyrir því að hann væri með heróín undir höndum heldur taldi hann sig vera að kaupa skammt af MDMA, lyfi með alsæluvirkni. Við greiningu kom í ljós að um heróín var að ræða.