Heimildin fjallar um þetta í dag í nýjasta tölublaði sínu.
Maðurinn, Lúðvík Pétursson, var einn að störfum á vettvangi þegar hann hvarf ofan í sprungu og bar leit að honum engan árangur. Leit var svo hætt þann 12. janúar eftir að aðstæður á vettvangi voru metnar ótryggar – ekki væri forsvaranlegt að senda sigmenn niður í sprunguna.
Varað hafði verið við sprunguhreyfingum á svæðinu eftir jarðhræringar undanfarinna mánaða.
Bent er á það í frétt Heimildarinnar að Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, hafi skrifað á Facebook-síðu sína eftir slysið að vonandi yrði „farið í það að leita svara og ræða aðdraganda og atburðarás af hreinskilni, heiðarleika og hófsemi“.
Elías er sagður hafa beðist undan viðtali en staðfest að með skrifum sínum á Facebook væri hann að kalla eftir því að málið yrði rannsakað af sjálfstæðum, óháðum aðilum.
Þá segir í umfjölluninni að af samtölum við aðra nána ættingja hafi komið fram að þau telji nauðsynlegt að rannsókn fari fram. Ættingjar hafi einnig verið ósáttir við hvernig yfirvöld stóðu að samskiptum við fjölskylduna. Þannig hafi þau ítrekað fengið fyrstu fréttir af framgangi leitarinnar í fjölmiðlum.