fbpx
Þriðjudagur 21.janúar 2025
Fréttir

Vel tekið í beiðni Önnu og hluti af eigum Guðna Más á heimleið

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 25. janúar 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær sagði DV frá því að Anna Kristjánsdóttir sem búsett er á Tenerife hefði tekið að sér að koma eigum vinar síns, Guðna Más Henningssonar, fyrrum útvarpsmanns, fyrir, en Anna vill gera allt sem í sínu valdi stendur til að koma eigum Guðna Más heim til Íslands.

Sjá einnig: Anna vill koma eigum Guðna Más heitins heim

Anna greindi frá þessu í daglegum pistli sínum á Facebook-síðu sinni. Um er að ræða nokkurt magn eða eins og Anna segir: „Mikið safn hljómplatna og geisladiska auk rándýrra hljómtækja. Mér skildist að þetta væri allt í þrettán ferðatöskum.“

Aðeins degi síðar hefur strax dregið til tíðinda, hluti af eigum Guðna Más á leið til landsins og fjölmargir hafa tekið vel í færslu Önnu og boðist til að aðstoða Önnu og dóttur Guðna Más fjárhagslega til að koma eigum Guðna Más heim til Íslands.

„Ég fékk dótið hans Guðna Más til mín í morgun með sendibíl og var öllu komið fyrir í geymslunni hennar Helenu. Ég fór að mæla þetta og reyndist það vera rúmir tveir rúmmetrar, en til einskærrar heppni hafði ein vinkona mín samband í gær og bauðst til að taka tvær af töskunum heim til Íslands og þar með fer heildarrúmmálið niður fyrir tvo rúmmetra og þess auðveldara að flytja afganginn í einu lagi til Íslands,“ segir Anna. 

Eigur Guðna Más
Mynd: Facebook

Eru að leita tilboða í flutning

Þrátt fyrir að tvær af töskunum séu nú á heimleið og einhverjir hafi í athugasemdum bent á að það sé góð leið að fá vini og íslendinga sem geta gripið með sér tösku til landsins segir Anna það ekki breyta því að dóttir Guðna Más þarf fjárhagslega aðstoð við flutninginn.

„Það breytir ekki því að dóttir hans er illa stödd fjárhagslega eins og er og því væri gott ef einhverjir vinir og gamlir aðdáendur Guðna geti haft samband við hana og rétt henni hjálparhönd við að koma dótinu hans heim.  Hún heitir Katrín Ísafold Guðnadóttir og er á Facebook, en til að einfalda málið, þá er hún með bankareikning 0315 – 26 – 030594 og kennitalan er 030594-2589.  Hún er sjálf á fullu í að leita tilboða um ódýran flutning á dótinu hans til Íslands,“ segir Anna.

Bendir hún á að Eimskip, fyrrum vinnustaður Guðna Más gæti séð sóma sinn í að gefa dóttur hans góðan afslátt af flutningnum.

„Þessar flutningamiðlanir mættu líka sjá sóma sinn í að hjálpa henni með því að veita henni góðan afslátt, þá ekki síst Eimskip enda starfaði Guðni Már þar í mörg ár þegar hann var yngri, en það var þar sem ég kynntist honum.

Hvað sem því líður, þá gekk dagurinn að vonum þótt ég væri að þeysast um allt eins og útspítt hundskinn.“

Kona ein segir ekki marga þurfa að aðstoða svo koma megi eigunum heim: „Þú ert með 4,9 þ. vini. Það þyrfti ekki marga til að leggja smáræði inn hjá Katrínu Ísafold og bjarga þessu. Við erum frekar stór hópur sem gleymum ekki Guðna Má í bráð. Síðast saknaði ég raddarinnar hans á rás eitt á aðfangadag. Sýnum samstöðu og munum: Margt smátt gerir eitt stórt. “

Þeir sem vilja styrkja dóttur Guðna Más um að koma eigum hans heim geta lagt inn á neðangreindan reikning:

Kennitala: 030594-2589
Reikningur: 0315 – 26 – 030594

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þessu ætlar Donald Trump að breyta strax á fyrsta degi

Þessu ætlar Donald Trump að breyta strax á fyrsta degi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Haukur afplánar 5 ára dóm og segist ranglega sakaður um tilraun til manndráps – „Af hverju er mér sleppt daginn eftir og ég labba frjáls í eitt ár?“

Haukur afplánar 5 ára dóm og segist ranglega sakaður um tilraun til manndráps – „Af hverju er mér sleppt daginn eftir og ég labba frjáls í eitt ár?“
Fréttir
Í gær

Fiskiskip rak stjórnlaust upp í fjöru við Patreksfjörð – Skipstjórinn á spítti

Fiskiskip rak stjórnlaust upp í fjöru við Patreksfjörð – Skipstjórinn á spítti
Fréttir
Í gær

Pattaya sagður vera of subbulegur staður fyrir samkynja pör að gifta sig á

Pattaya sagður vera of subbulegur staður fyrir samkynja pör að gifta sig á
Fréttir
Í gær

Læti í Loðmundarfirði vegna friðlýsingar – „Það eru persónulegar erjur manna á milli“

Læti í Loðmundarfirði vegna friðlýsingar – „Það eru persónulegar erjur manna á milli“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erill á næturvaktinni – Eftirför, átök, innbrot í gám, slagsmál

Erill á næturvaktinni – Eftirför, átök, innbrot í gám, slagsmál
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sælukot kærir Heilbrigðiseftirlitið fyrir „hóflausa beitingu valds“ – Létu loka leikskólanum vegna músagangs

Sælukot kærir Heilbrigðiseftirlitið fyrir „hóflausa beitingu valds“ – Létu loka leikskólanum vegna músagangs
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vörubílstjóri þóttist vera annar maður – Var líka fullur og próflaus

Vörubílstjóri þóttist vera annar maður – Var líka fullur og próflaus
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Svona miklum peningum eyddi Reykjavíkurborg í ferðir á einu og hálfu ári

Svona miklum peningum eyddi Reykjavíkurborg í ferðir á einu og hálfu ári