fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Óviss um að taka boði aldraðs manns um ættleiðingu – „Vill ekki enda að erfa bara einhverjar skuldir“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 13. janúar 2024 15:30

Engum erfingja er skylt að taka á sig skuldugt bú.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur maður greinir frá því á samfélagsmiðlum að fyrrverandi kærasti móður hans hafi boðist til að ættleiða hann. Hann segist þó óviss þar sem þessi fyrrverandi kærasti hafi ekki alltaf verið sá besti í fjármálum og hann óttist að taka á sig skuldir.

„Fyrrum kærasti móður minnar er kominn á aldur og er að byrjaður að ganga frá erfðaskrá. Hann bauðst til að ættleiða mig svo ég ætti jafnmikinn rétt á arfinum hans eins og hálf-systkini mín,“ segir maðurinn.

Hann segist vera að íhuga málið út frá fjárhagslegu sjónarmiði og sé ekki búinn að taka ákvörðun.

Í færslunni segir hann að þessi fyrrverandi kærasti móður hans hafi ekki alltaf verið sá besti þegar komi að fjármálum. Hann hafi komið sér upp nokkrum skuldum og hafi átt erfitt með að spara peninga.

Hins vegar eigi hann nokkrar eignir. Meðal annars hlut í nýju húsi með kærustu sinni og iðnaðarhús. Honum skiljist að búið sé að gera upp flestar skuldirnar. Aðeins liggi eftir einhver hluti af húsnæðislánum.

„Frá tilfinningalegu sjónarmiði þá er ég opinn fyrir þessu. Ég lít á hann sem föður minn og hann er búinn að vera partur af mínu lífi síðan ég man eftir mér,“ segir maðurinn sem leitaði ráða hjá öðrum netverjum. Það er hvort það sé eitthvað sem hann ætti að kanna eða spyrja að út frá fjárhagslegu sjónarmiði áður en hann tæki ákvörðun. „Vill ekki enda að erfa bara einhverjar skuldir,“ segir hann.

Ekkert að óttast

Lögin eru skýr hvað þetta atriði varðar og málið er skýrt vel í svari Sigurðar Guðmundssonar, skipulagsfræðings hjá Þjóðhagsstofnun, á Vísindavefnum við spurningunni: Erfast skuldir frá foreldrum?

Í svarinu kemur fram að skuldir erfast ekki sjálfkrafa. Aðeins réttindi erfast. Því sé ekkert að óttast fyrir lögerfingja þegar stórskuldugt foreldri deyr.

Skipti dánarbús, annað hvort einkaskipti eða opinber skipti, fara þannig fram að komist er að því hverjar eignir og skuldir viðkomandi séu. Eignunum er komið í verð, skuldirnar greiddar og afganginum, ef einhver er, er skipt á milli erfingja.

Hægt að taka við báðu

Þó geta erfingjar einnig lýst yfir ábyrgð á skuldbindingum dánarbús, og þannig tekið við bæði eignum og skuldum. Er það kallað skuldaviðgöngubú.

„Erfingjum er hins vegar ekki skylt að taka við búi þar sem skuldir arfleifanda eru meiri en eignir, og reyndar er erfingjum yfirhöfuð ekki skylt að gangast við búi, en þeim er það hins vegar frjálst,“ segir í svarinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“
Fréttir
Í gær

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Í gær

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana