Carl Oskar Bohlin ráðherra heimavarna sagði á ráðstefnu um öryggismál í vikunni að stríð gæti skollið á í Svíþjóð og að þjóðin yrði að bregðast við til að styrkja varnarviðbúnað landsins.
Sjá einnig: Svíum sagt að vera viðbúnir því að stríð skelli á
Undir þetta tók svo Micael Bydén, yfirhershöfðingi Svíþjóðar, sem sagði að Svíar ættu að búa sig andlega undir þennan möguleika.
Ástæðan er óvissan í stríði Rússlands og Úkraínu og yfirvofandi innganga Svíþjóðar í NATO. Segja sænsku ráðamennirnir að raunverulegur möguleiki sé á því að Rússland ráðist á Svíþjóð.
Þetta hefur valdið talsverðum ótta í Svíþjóð og segir Magdalena Andersson, fyrrverandi forsætisráðherra, að verið sé að ala á hræðsluáróðri. Þó að staðan væri alvarleg sé „stríð ekki handan við hornið“ eins og hún sagði í sænska sjónvarpinu í vikunni.
Sjá einnig: Svona mun árás Rússa á Svíþjóð eiga sér stað skref fyrir skref
Bris, samtök um réttindi barna í Svíþjóð, segir að jafnan sé ekki mikið hringt og spurt út í möguleikann á því að stríð brjótist út í Svíþjóð. Í þessari viku hafi síminn varla stoppað þar sem áhyggjufull ungmenni, sem séð hafa umfjöllun í fréttum eða á TikTok, spyrjast fyrir um möguleikann.
Maja Dahl, talsmaður Bris, segir að yfirvöld þurfi að setja málið fram með þeim hætti að börn skilji það.
Bydén segist ekki vilja valda óþarfa áhyggjum hjá fólki og það hafi ekki verið markmið hans. „Markmið mitt er að vekja fólk til umhugsunar um stöðuna,“ sagði hann í viðtali við Aftonbladet.