Níu ríki OECD komust hjá umframdauðsföllum í COVID-19 faraldrinum samkvæmt nýrri rannsókn stofnunarinnar, sem er þó ekki alveg lokið. Ísland var með næst lægstu tíðnina.
Aðeins Nýja Sjáland var með lægri tíðni en á eftir Íslandi koma Noregur og Írland. Eru þetta þau ríki sem komu best út úr faraldrinum allra ríkja OECD samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum rannsóknarinnar.
Umframdauðsfölll eru þau dauðsföll sem eru umfram það sem telja mætti eðlilegt á hverjum tíma. Í rannsókn OECD er litið til áranna 2020 til 2022, þegar covid faraldurinn stóð sem hæst.
Með því að mæla umframdauðsföll í samfélaginu er hægt að sjá hversu margir dóu líklega vegna faraldursins þrátt fyrir að hafa ekki endilega verið greindir með sjúkdóminn. Reiknað út frá dauðsföllum á fyrri árum.
Þessi rannsókn OECD er öðruvísi en fyrri rannsóknir að því leyti að hún tekur breytingar á fólksfjölda og lýðfræðilegum hópum, svo sem aldurshópum, inn í jöfnuna. En faraldurinn kom mun verr niður á eldra fólki en yngra.
Umframdauðsföll hafa mikið verið í umræðunni á undanförnum árum. Meðal annars hefur evrópska tölfræðistofnun Eurostat reglulega gefið út nýjustu tölur um umframdauðsföll. Tölur Eurostat sýndu háa tíðni á Íslandi eftir að hömlum var aflétt.
Embætti Landlæknis og Hagstofa Íslands töldu hins vegar útreikning Eurostat villandi. Mánaðarlegar dánartölur væuru áætlaðar út frá vikulegum tölum Hagstofu. Tíðnin væri mun lægri hér á landi en Eurostat sýndi.