Nú stefna Norðmenn á námuvinnslu á hafsbotni en þar er mikið af verðmætum málmum sem bíða þess að vera sóttir og fluttir upp á yfirborðið.
„Við fórum niður á 3.000 metra dýpi og tíndum steina á svæðum þar sem fólk hefur aldrei áður komið.“ Þetta segir jarðfræðingurinn Jan Stenløkk í myndbandi frá norsku Olíustofnuninni, sem var nýlega birt á YouTube. Undir orðum hans er dramatísk tónlist leikin.
Steinarnir innihalda járn, kóbalt og mangan.
En það sem Jan segir ekki í myndbandinu er að þessi steintínsla á hafsbotni er mjög umdeild.
Sósíalíski vinstriflokkurinn, sem styður norsku ríkisstjórnina, tilkynnti á fimmtudaginn að hann sé hættur við að styðja umdeilt frumvarp ríkisstjórnarinnar, sem verður tekið til afgreiðslu á Stórþinginu í haust, en þetta frumvarp er áætlun um kafað verði eftir málmum um 1.200 km fyrir utan strönd Bergen.
Mörg náttúruverndarsamtök hafa gagnrýnt ríkisstjórnina og segir WWF að tillagan sé „ein versta ákvörðunin varðandi umhverfismál sem tekin hefur verið“.
Í lok ágúst skrifuðu átta norsk umhverfisverndarsamtök grein í Aftenposten um málið. „Nú má Stórþingið ekki láta ríkisstjórnina blekkja sig. Stoppið þessa klikkun,“ skrifuðu þau meðal annars og bættu við að enginn viti hvort hægt sé að stunda námuvinnslu á hafsbotni án þess að valda óbætanlegum skaða á viðkvæmum vistkerfum. Ekkert annað land í heiminum hafi heimilað slíka vinnslu.