Magnús Kristinn Magnússon átti að koma heim frá Dóminíska lýðveldinu, en hann átti flug fyrir tæpri viku síðan. Ekkert hefur spurt til Magnúsar síðan, en hann flaug til Dóminíska lýðveldisins í byrjun september og átti að koma heim á sunnudaginn. Vísir greindi fyrst frá.
Systir Magnúsar, Rannveig Karlsdóttir, hefur nú skrifað færslu á Facebook þar sem hún biður almenning um aðstoð, einkum þá sem þekkja til í Dóminíska lýðveldinu.
„Ef einhver þekkir til í Dóminíska lýðveldinu eða þekkir fólk sem býr þar, gætum við þegið hjálp. Maggi, Magnús Kristinn Magnússon, fór til Dóminíska lýðveldisins þann 3. september síðastliðinn, þar sem hann lenti á Santo Domingo flugvellinum. Von var á honum heim þann 10. sept. en frá þeim degi hefur ekkert til hans spurst. Ekki næst samband við símann hans, engin hreyfing er á samfélagsmiðlum né bankareikningi hans. Þannig að ef einhver þekkr til þarna úti og telur sig geta aðstoðað, þá þiggjum við alla hjálp fegins hendi enda farin að óttast mjög um afdrif hans. Magnús er fæddur 1987, um það bil 1,85 sm á hæð, grann- og íþróttamannslega vaxinn. hann er með gráblá augu, dökkhærður, mjög snöggklipptur og með dökka skeggrót.“
Þeir sem gætu haft upplýsingar um ferðir Magnúsar eða afdrif Magnúsar, geta haft samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000 eða við systur Magnúsar, Rannveigu Karlsdóttur, í síma 660-4313.