Í dag var gefið út veggspjald sem Rán Flygenring teiknari hannaði, en veggspjaldið ber heitið Rán gegn rányrkju. Útgefandi veggspjaldsins er Tómas Guðbjartsson læknir og náttúruverndarsinni, sem jafnframt kostaði útgáfuna.
„Við náttúruverndarsinnarnir höfum nú komið myndskýrslunni um hinar óskiljanlegu hvalveiðar í veggspjaldaform og má nálgast eintak með því að bomba skilaboðum á lækninn. Fyrir þessu er auðvitað ærið tilefni, því á föstudaginn má búast við að ákvörðunin um bann á hvalveiðum verði endurskoðuð. Hér er ekki bara líf einnar eða tveggja eða hundrað langreyða undir, heldur eiginlega spurningin: Trompa völd og auðmagn bara ALLT? Eða má annað skipta máli?“ segir Rán.
Um er að ræða myndskýrslu í 33 myndum sem birtist fyrr í sumar á ýmsum vefmiðlum og hlaut verðskuldaða athygli. Þar útskýrir Rán í myndmáli fáránleika hvalveiða á Íslandi – með húmor og listfengar teikningar sínar að vopni. Myndskýrsluna má lesa hér.
Til stóð að prenta veggspjaldið aðeins í 100 eintökum á silkihúðaðan pappír, og er hvert eintak númerað og áritað af Rán. Hins vegar seldist upplagið upp á aðeins þremur klukkustundum og ákváðu Rán og Tómas því að láta þegar prenta fleiri eintök sem einnig verða númeruð og árituð. Veggspjaldið kostar 5.000 kr og rennur allur ágóði í sjóð til verndunar íslenska hvalastofnsins.
Má tryggja sér eintak með því að senda skilaboð á Facebook til Tómasar.