Hinn grunaði raðmorðingi Rex Heuermann er sagður hafa tekið sér rúmlega vikufrí frá því að áreita ástvini eins fórnarlambs síns til þess að skella sér í frí til Íslands. Þegar fríinu lauk hélt ógeðfellt áreitið áfram. Þetta kemur fram í gögnum málsins sem lögð voru fram við dómstól í Suffolk-sýslu í New York þar sem málið var þingfest. Þar lýsti Rex yfir sakleysi sínu og óskaði eftir því að vera sleppt gegn tryggingu. Féllst dómari ekki á þá beiðni í ljósi alvarleika brotanna.
Eins og komið hefur fram er Rex ákærður hafa myrt þrjár kynlífsverkakonur, Melissu Barthelemy, Megan Waterman og Amber Lynn Costello auk þess sem hann er efstur á lista grunaðra vegna morðsins á fjórðu kynlífsverkakonunni Maureen Brainard-Barnes.
Lík Melissu Barthelemy var það fyrsta sem fannst á Gilgo-strönd þann 11. desember 2009 og í kjölfarið fóru lík fleiri fórnarlamba að koma í ljós á svipuðum slóðum.
Fram hefur komið að eiginkona Rex Heuermann, hin íslenska Ása Guðbjörg Ellerup, hafi verið með skothelda fjarvistasönnun vegna mannshvarfanna en upphaflega beindist grunur að henni í ljósi þess að hár af henni fundust á líkum nokkurra fórnarlambanna.
Þegar Barthelemy hvarf, í júlí 2009, var Ása til að mynda stödd í fríi á Íslandi en þangað flaug hún þann 8. júlí 2009. Tveimur dögum síðar, þann 10. júlí 2009, hvarf Melissa Barthelemy af yfirborði jarðar en þá er talið að Rex hafi verið í sambandi við hana í rúma viku.
Það óhugnanlega í málinu er að Rex er grunaður um að hafa stolið síma Barthelemy eftir morðið og notað hann til þess að fylgjast með talhólfi hennar og síðan að hrella ástvini hennar með símtölum. Á hann í fjölmörg skipti að hafa hringt í ættingja Barthelemy og greint þeim frá því að hann hafi misnotað hana kynferðislega áður en hann hafi myrt hana.
Sú ógeðfellda hegðun varði allt til 10. ágúst 2009 en þann sama dag flaug Rex Heuermann í stutt frí til Íslands þar sem hann hitti fyrir eiginkonu sína Ásu Guðbjörgu. Eyddu þau átta dögum hér á landi en á sama tíma þagnaði sími Barthelemy.
Þann 18. ágúst 2009 flugu Rex og Ása Guðbjörg aftur til New York. Daginn eftir kviknaði á síma Barthelemy og viðurstyggilegt áreitið byrjaði að nýju.