Fjögur ungmenni hafa verið ákærð vegna morðsins á hinum 27 ára gamla Bartlomiej Kamil Bielenda þann 20. apríl síðastliðinn við Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
Þrír drengir á aldrinum 17 til 19 ára eru ákærðir fyrir að hafa banað Bartlomiej á bílastæðinu við Fjarðarkaup og sautján ára stúlka er ákærð fyrir brot á hjálparskyldu. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson saksóknari hjá héraðssaksóknara við DV.
Í tilkynningu frá lögreglu þann 21. apríl kom fram lögreglu hefði borist tilkynning á tólfta tímanum um átök á bifreiðastæði við verslunina Fjarðarkaup á Hólshrauni. Lögreglan hélt þegar á vettvang og fann þolandann, sem var fluttur á slysadeild og úrskurðaður þar látinn skömmu síðar. Í kjölfarið voru fjórir aðilar handteknir í tengslum við málið.
Ungmennin hittu hinn látna á Íslenska rokkbarnum í Hafnarfirði. Ekki er ljóst hvað leiddi til átaka á milli þeirra, sem bárust frá barnum yfir á bílastæði Fjarðarkaupa þar sem Bartlomiej var myrtur. Var hann stunginn ítrekað með eggvopni. Nítján ára karlmaður játaði sök stuttu síðar, og er hann ákærður fyrir manndráp auk tveggja sautján ára karlmanna. Sautján ára stúlka sem tók árásina upp á síma sinn er ákærð fyrir brot á hjálparskyldu, með því að hafa ekki komið Bartlomiej til hjálpar eða hringt á lögreglu.
Stúlkan losnaði fljótlega úr gæsluvarðhaldi og kom fram í úrskurði Landsréttar að hún hefði tjáð lögreglu að hún hefði ekki tekið þátt í átökunum heldur verið í fimm til átta metra fjarlægð. Sagði hún átökin aðallega hafa verið milli tveggja manna. Stúlkan er ákærð fyrir brot á hjálparskyldu samkvæmt 221. grein almennra hegningarlaga þar sem segir að láti maður farast fyrir að koma manni til hjálpar, sem staddur er í lífsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigði sjálfs sín eða annarra í háska, þá varði það fangelsi allt að tveimur árum, eða sektum, ef málsbætur eru.
Gæsluvarðhald var framlengt yfir drengjunum þremur í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Tveir þeirra hafa vegna ungs aldurs verið vistaðir á Stuðlum en einn í fangelsinu á Hólmsheiði.