fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fréttir

Vonsviknir vonbiðlar í Ekvador eftir að íslensk stjórnvöld kvöddu þrálátan orðróm í kút

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. júní 2023 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir eru líklega nokkrir sem eru vonsviknir vegna nýlegrar fréttar hjá ekvadorska miðlinum Metro, en þar var greint frá því að stjórnvöld á Íslandi hefðu veitt miðlinum þær upplýsingar að ekkert væri hæft í þrálátum orðróm sem hefur gengið þar í landi um nokkra hríð.

Orðrómurinn hélt því fram að íslenska ríkisstjórnin hefði tekið upp á því að erlendum karlmönnum yrði borgað fyrir að koma til landsins og giftast þar íslenskri konu og geta henni börn. Var þetta sagður liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að auka fæðingartíðni.

Metro segir: „Íslensk stjórnvöld hafa skýrt það út við Metro Ekvador að upplýsingar um aðgerðir sem þau eru sögð hafa ráðist í til að bæta fæðingartíðni, séu rangar. Þrátt fyrir að þetta séu upplýsingar sem skrifað hefur verið um í mörgum miðlum víða um heiminn í rúman áratug, viljum við biðjast afsökunar á að hafa dreift fölskum upplýsingum um úrræði sem aldrei voru raunveruleg.“

Vissulega er hér um þrálátan orðróm að ræða sem virðist ekki ætla að takast að kveða niður. Vefurinn Snopes, sem sérhæfir sig í að rannsaka sannleiksgildi frétta, tók þetta fyrir árið 2016, og rakti orðróminn þá til fréttamiðla í Afríku. Orðrómurinn hefur þó tekið breytingum í gegnum tíðina því árið 2016 áttu Íslendingar að glíma við karlmannsskort og hefðu stjórnvöld því ákveðið að bjóða innflytjendum um 600 þúsund króna greiðslu á mánuði ef þeir væru tilbúnir að taka sér íslenska konu.  Var orðrómurinn rakinn til bloggsíðu og grein var frá því að í kjölfar bloggfærslunnar hafi vinabeiðnum rignt yfir íslenskar konur frá erlendum vonbiðlum.

Danska sendiráðið í Egyptalandi fékk að finna fyrir fyrirspurnum vegna málsins og sá sig knúið til að kveða orðróminn í kút í færslu á Facebook.

Seinna breyttist orðrómurinn á þann veg að nú áttu íslensk stjórnvöld að ábyrgjast vinnu fyrir karlmenn sem hingað kæmu til að giftast íslenskum konum. Nú virðist orðrómurinn aftur hafa tekið breytingum og mun nú ætlunin vera að fjölga hér fæðingum, enda gætu sumir kokgleypt slíkar fullyrðingar í ljósi þess að dregið hefur úr fæðingum hér á landi undanfarin misseri.

Eins og sjá má er þó enn verið að reyna að sannfæra útlendinga um að hér bíði þeim einmana konur sem séu jafnvel sjálfar tilbúnir að borga þeim ef þeir aðeins segja já.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum
Fréttir
Í gær

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar