Bylting gæti átt sér stað innan Rússlands ef stríðið í Úkraínu dregst enn á langinn og vandræðalegir ósigrar halda áfram að hrannast upp. Þetta segir Yevgeny Prigozhin, stofnandi Wagner-málaliðahersveitarinnar, í viðtali á heimasíðu rússneska bloggarans Konstantin Dolgov en CNN greinir frá.
Í viðtalinu skammast Prigozhin, sem gjarnan er nefndur Kokkur Pútíns, yfir því að rússneska varnarliðið sé óundirbúið undir skærur Úkraínumanna á rússneskri grundu. Á dögunum urðu Rússar fyrir niðurlægjandi áfalli þegar rússneskir uppreisnarmenn, sem berjast við hlið Úkraínumanna, héldu yfir landamærin og gerðu árás á rússneska bæi við landamærin og stálu meðal annars hertækjum og tóku myndir og myndbönd upp af gjörðum sínum.
Þetta segir Prigozhin vera til skammar og hann hvatti Vladimir Pútín, Rússlandsforseta, til þess að bæta í hernaðaraðgerðirnar í Úkraínu. Að hans mati ætti Pútín að lýsa yfir herlögum og senda fleiri hermenn á vígvöllinn. Þá hrósaði hann einnig andstæðingum Rússa.
„Ég er á því að Úkraínumenn séu í dag með einn öflugasta her heims,“ sagði Prigozhin. Hann sagði Úkraínuher vera mjög skipulagðan, vel þjálfaðan og upplýsingaöflun þeirra væri eins og best gerðist. Þá gætu hermenn Úkraínumanna notað nánast öll hergögn, hvort sem þau væru frá tímum Sovétríkjanna eða nýrri tæki frá NATO.
Prigozhin hefur verið gjarn á að gagnrýna rússneska herinn og og orð hans hljóta að vera viðvörunarmerki til Pútíns. Sagði Kokkurinn að ef ósigrar rússneska hersins héldu áfram að hrannast upp þá gæti brostið á bylting, rétt eins og árið 1917.
„Fyrst munu hermennirnir rísa upp og eftir það þá munu ástvinir þeirra gera slíkt hið sama,“ sagði Prigozhin og benti á að ekki skyldi vanmeta þann fjölda en væru það líklega hundruð þúsunda Rússa sem hefðu misst ástvin í stríðinu.