Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gærkvöldi eftir að lögregla var send ásamt sjúkraliði á veitingastað vegna bráðaveikinda sem reyndust svo vera minniháttar veikindi.
Þegar lögregla kom á vettvang var vegfarandi ósáttur með viðveru lögreglu á stðanum og lét það í ljós með því að kýla lögreglumann fyrirvaralaust í andlitið.Í skeyti frá lögreglu kemur fram að maðurinn verði kærður fyrir að tálma lögreglumanni að gegna starfi sínu, segja ekki til nafns eða framvísa persónuskilríkjum, vörslu fíkniefna ásamt því að hafa beitt opinberan starfsmann ofbeldi.
Fleiri mál komu inn á borð lögreglu í gærkvöldi og í nótt. Ölvaður maður veittist til dæmis að starfsmanni veitingahúss og hlýddi svo ekki fyrirmælum lögreglu þegar vísa átti honum á brott. Hann var þá handtekinn og vistaður í fangaklefa sökum ástands.
Þá horfði lögreglumaður á frívakt upp á fíkniefnaviðskipti tveggja manna. Hann tilkynnti það að sjálfsögðu til vinnufélaga sinna á vakt sem stöðvuðu meintan fíkniefnasala. Sá reyndist vera með fíkniefni í fórum sínum sem lögreglu grunar að hafi verið ætluð til sölu.
Lögreglumenn á stöð 4, sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, fengu svo tilkynningu um tvær líkamsárásir í heimahúsum í sitt hvoru póstnúmerinu. Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
vistaður í fangaklefa.
Í viðbót við þetta sinnti lögregla einnig umferðareftirliti og eiga nokkrir ökumenn von á því að vera kærðir, meðal annars fyrir of hraðan akstur, akstur án ökuréttinda og ófullnægjandi ljósanotkunar.