Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 3,5 árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps á nýársnótt 2020 í Reykjanesbæ. Fjórir karlmenn voru ákærðir í málinu, tveir þeirra voru sýknaðir, en sá fjórði var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Tveir mannanna eru rúmlega tvítugir og tveir þeirra um fertugt.
Einn ákærðu í málinu og jafnframt þolandi í málinu er einn 25 sakborninga í Bankastræti Club málinu, sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 21. mars síðastliðinn. Þar er viðkomandi karlmaður ákærður fyrir:
sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa í félagi, ruðst grímuklæddir inn á skemmtistaðinn og í sal á neðri hæð skemmtistaðarins, króað af og veist að A, B og C, með eftirfarandi hætti: veist að A með ítrekuðum höggum, spörkum og hnéspörkum í höfuð og búk og stappað með fætinum á höfði hans þar sem hann lá í gólfinu og sparkað í C.
Sjá einnig: Bankastræti Club-árásin þingfest á þriðjudag – Fjölmennt verður í dómssal
Dóminn má lesa í heild sinni hér.
Var um tíma í lífshættu
Fjallað var um hnífaárásina í Reykjanesbæ í fjölmiðlum, meðal annars í Víkurfréttum, en átök tveggja hópa á nýársmorgun áttu sér stað í og fyrir utan heimahús í bænum. 18 ára karlmaður (X í dómi héraðsdóms) var stunginn fimm sinnum í átökunum. Hann var í lífshættu um tíma, missti 4,5 lítra af blóði og gekkst undir yfir fjögurra klukkustunda aðgerð þar sem meðal annars þurfti að fjarlægja úr honum miltað. Í færslu á Instagram þakkaði fyrir batakveðjurnar og segist koma sterkari og vitrari til baka
Einn ákærður fyrir tilraun til manndráps og allir fjórir fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir
Héraðssaksóknari höfðaði málið á hendur mönnunum 17. nóvember. A sem hlaut þyngsta dóminn, var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ítrekað lagt til X með vasahníf með 6,3 sm löngu blaði, sem A hafði í vörslum sínum. Hlaut X samtals fimm stunguáverka, þar af einn sem náði inni í kviðarhol og í gegnum milta svo fjarlægja þurfti miltað og annan sem olli loftbrjósti.
A var einnig, ásamt Y, ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa í félagi veist að Z og slegið hann ítrekað, með glerflösku og hnefahöggum í höfuðið, ákærði A sparkað í hann og reynt að stinga hann með hníf, allt með þeim afleiðingum að Z hlaut bólgu við kinnbein og á vinstri hlið andlits og 2-3 grunna skurði á fingrum.
Z var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa veist að Y og ítrekað slegið hann með glerflösku og hnefahöggum í höfuðið, allt með þeim afleiðingum að Y hlaut bólgu og 1 sm skurð ofan við enni hægra megin á hvirfli, kúlu og hrufl vinstra megin á ehnni, nokkrar minni kúlur aftan á höfði, þar af tvær aftan á hnakka, auk skráma á höfði.
X og Z voru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa í félagi veist að A og ítrekað slegið hann, bæði með glerflöskum og hnefahöggum í höfuð og búk, allt með þeim afleiðingum að A hlaut rispur yfir vinstra kinnbeini, nefi, enni og brjóstkassa vinstra megin, skrámu yfir miðjum kvið, bólgu og eynsli yfir nefbeini og höfuðverk.
Metinn sakhæfur
Fram kemur í dómi héraðsdóms að geðrannsókn var framkvæmd á A og leiddi niðurstaða hennar í ljós að ekkert benti til þess að hann hefði verið ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Hann var því metinn sakhæfur. Maðurinn hélt því fram að stunguárásin hefði helgast af neyðarvörn í kjölfar átakanna, því hafnaði hafnaði héraðsdómur.
A var eins og áður sagði dæmdur í fangelsi í 3 og hálft ár fyrir tilraun til manndráps, og var einnig dæmdur til að greiða einum mannanna, X, 2,6 milljónir í bætur auk 400.000 kr. í málskostnað.
Z var sakfelldur fyrir líkamsárás og hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn og var einnig dæmdur til að greiða einum mannanna, Y, 300.000 kr. í bætur og 250.000 kr. í málskostnað.
X og Y voru sýknaðir í málinu.