fbpx
Laugardagur 18.janúar 2025
Fréttir

Þorkell í Smíðalandi sakfelldur – Segist ekkert vit hafa á bókhaldi – Fjármálastjórinn fékk yfir 300 milljónir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. mars 2023 17:30

Frá Smiðshöfða 7 þar sem erlendu verkamennirnir bjuggu. Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorkell Kristján Guðgeirssonm, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjanna Smíðaland og 2findjob, hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld skattalagabrot í rekstri félaganna á árunum 2016 til 2018. Þorkell, sem er rúmlega sextugur, var á árum áður húsasmíðamesitari en stofnaði Smíðaland árið 2016. Hann stofnaði síðan systurfyrirtækið 2findjob, sem var starfsmannaleiga. Í dag býr Þorkell í Noregi og er öryrki.

Sumarið 2021 var Þorkell sakfelldur fyrir hættubrot við rekstur 2findjob en hann lét erlenda starfsmenn búa í verksmiðjuhúsnæði við Smiðshöfða 7. Vistarverum þeirra var lýst sem hættulegum „svefnskápum“. Var Þorkell dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þetta. „Þetta var það alvarlegt og í reynd eitt ljótasta mál sem við höfum staðið frammi fyrir að við töldum mikilvægt að leggja okkar kæru fram og í raun er um prófmál að ræða,“ sagði Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í viðtali við Vísir.is á sínum tíma. Bætti hann við að hann hefði ekki séð annað eins á 30 ára ferli sínum í slökkviliðinu.

Bókarinn tók út stafla af peningum

Skattalagabrotin snúast um vanskil á virðisaukaskatti, staðgreiðslu skatta og launatengdum gjöldum fyrir rekstrarárin 2016 til 2018. Nema meint skattsvik rúmlega 197 milljónum króna í rekstri Smíðalands og um tæplega 60 milljónum í rekstri 2findjob.

Við rannsókn málsins og fyrir dómi neitaði Þorkell aldrei beinlínis sök en sagðist ekki hafa vit á bókhaldi og að fjármálastjóri og bókari fyrirtækisins hefði borið ábyrð á skattskilum. Þessu hafnar bókarinn en hann hefur sjálfur verið dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 142,5 milljóna króna sektar í ríkissjóð fyrir brot í störfum sínum hjá fyrirtækjunum. Hefur hann áfrýjað þeim dómi til Landsréttar. Mennirnir saka hvor annan um að bera ábyrgðina.

Fram kemur í dómnum yfir Þorkeli að rúmlega 321 milljón króna hafi runnið úr fyrirtækjunum til félags bókarans. Kona sem vann sem verktaki um fimm vikna skeið hjá Smíðalandi segir bókarann hafa tekið út reiðufé af reikningi Smíðalands í milljónavís. Var konan ráðin til að koma skikki á mikla óreiðu í rekstrinum en hún segist hafa gefist upp eftir fimm vikur og gengið út. Telur konan að bókarinn hafi haft mikið vald yfir Þorkeli.

Gífurlega há fjársekt

Það var niðurstaða dómara að Þorkell bæri fulla ábyrgð á skattamisferlinu í rekstri fyrirtækjanna enda prókúruhafi og skráður stjórnarformaður og framkvæmdastjóri. Einnig sé ljóst að hann hafi komið að fjármálum fyrirtækisins, meðal annars skattskilum og gerð virðisaukaskattskýrslna.

Þorkeli er virti til refsilækkunar að hann hefur gert upp við ríkissjóð 31 milljón króna af vangoldnum virðisaukaskatti.

Hann var samt dæmdur til að greiða himinháa sekt í ríkssjóð, 713 milljónir króna. Auk þess var hann dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi.

Sjá dóm héraðsdóms

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir
Fréttir
Í gær

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“