Þarna var hann að ræða um „Ground Launched Small Diameter Bomb“ (GLSDB), sem er meðal þeirra vopna sem eru að finna í nýjasta hjálparpakka Bandaríkjanna til Úkraínu, og afhendingu vopnsins til Úkraínu.
GLSDB eru langdræg flugskeyti. Þau draga allt að 151 km en í dag er HIMARS-kerfið það vopnakerfi, sem Úkraínumenn ráða yfir, sem er langdrægast en það dregur allt að 77 km.
Með GLSDB tvöfaldast drægi vopna úkraínska hersins og hefur það í för með sér að hann getur fræðilega séð gert árásir á skotmörk á öllum þeim úkraínsku landsvæðum sem Rússar hafa hernumið. Þetta mun væntanlega koma sér mjög vel við árásir á birgðaflutningalínur Rússa, skotfærageymslur og stjórnstöðvar hersins og bækistöðvar.
Rússar áttu í miklum vandræðum á síðasta ári eftir að Úkraínumenn fengu HIMARS-kerfi en þau notuðu þeir með mjög góðum árangri til árása á birgðaflutningalínur Rússa. Nú gætu þeir farið að ráðast á flutningslínurnar og önnur skotmörk enn lengra að baki víglínunnar.
Rein Pella, kennari við sænska varnarmálaskólann, sagði í samtali við Aftonbladet að ef Úkraínumenn geti nú skyndilega gert árásir enn lengra að baki víglínunnar þá verði Rússar að flytja skotfæri sín og hermenn lengra frá fremstu víglínu, hugsanlega allt að 175 km. Þetta sé mikill munur. „HIMARS eyðilagði birgðaflutninga Rússa og hægði á þeim. Þegar Úkraínumenn fá GLSDB verður staðan enn verri,“ sagði hann.
GLSDB er framleitt af SAAB og Boeing. Lítil sprengja er sett á M26-flugskeyti. Eftir að því er skotið á loft þenjast vængir út og flugskeytið ber sprengjuna að skotmarki sínu en GPS er notað til að stýra því á réttan stað. SAAB segir að GLSDB geti hæft skotmark með nokkurra sentimetra nákvæmni. Það er hægt að nota HIMARS-kerfið til að skjóta GLSDB á loft og hægt er að skjóta mörgum á loft samtímis og það á mismunandi skotmörk. Sprengihleðslan er stærri en í venjulegum HIMARS-flugskeytum en GLSDB kostar aðeins um helminginn af því sem HIMARS kostar.