Þetta sögðu tveir úkraínskir hermenn í samtali við CNN. „Ein af skyttunum okkar var að missa vitið því hann gat bara haldið endalaust áfram að skjóta á þá. Hann sagði: „ég veit að ég hitti en hann deyr ekki“. Eftir nokkurn tíma hneig hann síðan niður og blæddi út,“ sagði annar þeirra.
„Þeir vaða yfir lík vina sinna, trampa á þeim.“
Liðhlaupar úr Wagner og hermenn, sem Úkraínumenn hafa handsamað, hafa sagt erlendum fjölmiðlum að þeir hafi verið sendir í fremstu víglínu illa búnir og nánast án þess að fá þjálfun.
Úkraínskir hermenn hafa sagt að óþjálfaðir Wagnerliðar séu sendir beint út í opinn dauðann í Bakhmut. Þeir sæki fram og vonist til að geta drepið nokkra úkraínska hermenn. Þegar Wagnerliðarnir detti dauðir niður sé næsta bylgja send af stað og þannig haldi þetta stöðugt áfram.
Viðmælendur CNN sögðu að það væri ekki fyrr en Wagnerliðar hafi getað sótt aðeins fram og náð landsvæði á sitt vald sem best þjálfuðu Wagnerliðarnir séu sendir í fremstu víglínu.
„Við börðumst stanslaust í tíu tíma og það var ekki þannig að árásirnar kæmu í bylgjum. Þær stóðu stöðugt yfir. Þeir hættu ekki að sækja að okkur. Við vorum 20 hermenn okkar megin og kannski 200 þeirra megin,“ sögðu þeir.