fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Atli Viðar og Árvakur lögðu Mannlíf vegna minningargreinaskrifa

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 22. febrúar 2023 09:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómur féll nú í morgun í máli Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins og mbl.is, og Atla Viðars Þorsteinssonar, gegn Reyni Traustasyni, eiganda og ritstjóra Mannlífs og útgáfufélagi hans Sólartún ehf. Var dæmt stefnendum í vil og þarf Reynir og útgáfufélag hans að greiða Árvakri og Atla Viðari bætur, auk þess að greiða málskostnað Árvakurs. Að auki þarf Mannlíf að birta dómsniðurstöðuna í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu.

Atli Viðar fagnaði úrskurðinum ákaft á Twitter-síðu sinni

Fóru fram á 1,5 milljón króna bætur

Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins og mbl.is, stefndi Reyni Traustasyni, eiganda og ritstjóra Mannlífs og útgáfufélagi hans Sólartún ehf., fyrir fréttaskrif upp úr minningargreinum sem birtust í Morgunblaðinu. Árvakur krafðist þess að ritstjórinn og útgáfufélagið yrði dæmt til að greiða 1,5 milljónir þar sem Árvakur eigi útgáfu-og birtingarrétt minningargreinanna.

Gerðu sér mat úr minningargrein um bróður Atla Viðars

Atli Viðar Þorsteinsson, stefndi jafnframt Reyni og Sólartúni, en Atli Viðar skrifaði minningargrein um bróður sinn í Morgunblaðið. Mannlíf gerði sér mat úr minningargreininni, og skrifaði frétt og birti mynd af bróðurnum.

Atli Viðar steig meðal annars fram í ítarlegu helgarviðtali við DV þar sem hann ræddi meðal annars upplifun sína af fréttaskrifum Mannlífs.

„Það er gríðar­lega þungu fargi af mér létt og okkur í fjöl­skyldunni, að hafa unnið fullnaðar­sigur í þessu máli er ekkert annað heldur en stór­kost­legt,“ sagði Atli í samtali við Fréttablaðið eftir að dómur var uppkvaðinn.

„Þetta geir­neglir það að svona fram­koma eins og hjá Mann­líf og Reyni Trausta­syni er sið­ferðis­lega röng. Það vissu það allir en nú er það stað­fest að þetta er einnig rangt í augum laganna.“

Atli sagði ennfremur að það mikilvægasta sé að niðurstaða héraðsdóms komi í veg fyrir að Mann­líf geti gert þetta aftur gegn öðrum. „Það er stóri sigurinn í þessu máli, að fólk fái að syrgja í friði. Það sem Reynir gerir þarna er að hafa sorg að­stand­enda að fé­þúfu og heggur í fólk á sinni við­kvæmustu stund.“

Ítarlegra viðtal við Atla má lesa á vef Fréttablaðsins.

Hryllingstímabili lokið

Atli Viðar krafði ritstjórann og útgáfufélagið um 1,5 milljón fyrir brot á höfundar-og sæmdarrétti.Í gær tvítaði Atli Viðar að dómsniðurstöðu væri að vænta í dag: „Á morgun klukkan 9.15 fellur dómur í málsókn minni gegn Reyni Traustasyni og Mannlífi fyrir að ritstela og afskræma minningargrein bróður míns. Hvernig sem dómur fellur verð ég svo ógeðslega fokking glaður yfir þetta krabbameins/uppsagnar/málsóknarhryllingstímabili sé lokið.“

Umdeild fréttaskrif

Fréttaskrif Mannlífs upp úr minningargreinum Morgunblaðsins voru umdeild, sér í lagi þar sem flestar þeirra voru vegna einstaklinga sem voru alls ekki þjóðþekktir og voru þeir jafnframt myndbirtir á vef Mannlífs. Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Reynis og Sólartúns ehf., sagði við RÚV í byrjun október: „Þetta snýst um rétt fjölmiðla til að vitna í aðra fjölmiðla. Þetta snýst um tilvitnunarrétt.“ Atli Viðar sagðist þá velta fyrir sér hvar ábyrgð ritstjóra Mannlífs liggi gagnvart syrgjendum.

Aðstandandi ótengdur málinu sem féll í dag kærði Reyni og Sólartún til siðanefndar Blaðamannafélagsins, sem þann 5. desember 2020 komst að þeirri niðurstöðu að skrif upp úr minningargreinum væru ekki brot á siðareglum. Sagði í úrskurði siðanefndar:

„Birting minningargreinar í dagblaði er opinber birting. Siðanefnd BÍ telur að endurbirting eða útdráttur úr minningargrein í öðrum miðli fari ekki í bága við siðareglur BÍ enda sé þar ekki vikið frá upprunalegum texta eða efnið brenglað.“

Eftir það hóf Morgunblaðið að setja fyrirvara á minningargreinar sem birtust í blaðinu um að endurbirting minningargreina í öðrum miðlum væri óleyfileg nema með samþykki höfunda og Morgunblaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“
Fréttir
Í gær

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Í gær

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn

Sérfræðingar telja að enn sé tími til að stökkva á Bitcoin-vagninn
Fréttir
Í gær

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“
Fréttir
Í gær

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð

Mangione sagður hafa „misst vitið“ eftir sársaukafulla aðgerð