fbpx
Sunnudagur 22.desember 2024
Fréttir

Hefur tekist að vinna á uppsöfnuðum málafjölda kynferðisbrota

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. febrúar 2023 09:30

Höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tekist hefur að vinna töluvert niður uppsafnaðan málafjölda hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu (LRH) með fjölgun starfsfólks og breyttum vinnubrögðum. Opnum kynferðisbrotamálum á ákærusviði og í kynferðisbrotadeild LRH hefur fækkað um 37% á undanförnum mánuðum eftir að embættið hlaut sérstaka fjárveitingu til að styrkja rannsókn og saksókn kynferðisbrota. Kemur þetta fram í tilkynningu frá LRH.

401 opin mál voru hjá embættinu 1. september síðastliðin, en 17. janúar síðastliðinn voru þau komin niður í 253 og fækkaði því um 148. Embættinu barst á sama tíma nokkur fjöldi nýrra mála en í heild lauk rannsókn alls 239 kynferðisbrotamála á þessu fjögurra og hálfs mánaða tímabili.

Ýmsar aðgerðir til að flýta meðferð kynferðisbrota

Segir í tilkynningunni að ráðist hafi verið í ýmsar aðrar aðgerðir til að flýta meðferð kynferðisbrota. Verkferlar embættisins voru endurskoðaðir með það að markmiði að auka málshraða við rannsóknir brotanna. Þá var samvinna kynferðisbrotadeildar og tölvurannsóknardeildar aukin og bætt til að stytta rannsóknartíma rafrænna gagna sem tengjast kynferðisbrotum og einnig var stoðþjónusta frá þjónustudeild embættisins aukin. Þar að auki var útbúið stjórnborð þar sem fylgst er með fjölda mála og framvindu þeirra hjá kynferðisbrotadeild og ákærusviði.

Þetta eru framfaraskref við meðferð kynferðisbrota hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og standa vonir til að afgreiðsla mála sem hafa því miður verið of lengi í kerfinu, með tilheyrandi áhrifum á brotaþola, verði flýtt eins og kostur er.

„Það er ánægjulegt að sjá þennan góða árangur sem náðst hefur á skömmum tíma. Við erum ekki hætt og munum halda áfram að leita leiða til að stytta málsmeðferðartíma kynferðisbrota á sama tíma og við tryggjum gæði rannsókna. Auknar fjárveitingar hafa skipt sköpum og þá skiptir máli að við erum að mæla árangurinn jafnóðum sem hjálpar okkur að fylgjast með því ef það verða til flöskuhálsar en það eru fjölmargir sem koma að meðferð þessara mála hjá embættinu. Það er og hefur verið markmið okkar að bæta enn frekar þjónustu lögreglu í þessum mikilvæga málaflokki,“ segir Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tók pizzaofninn með við lok leigutíma og olli skemmdum á húsnæðinu – Sveik loforð um þrif en sagðist þó hafa skilað í betra standi en hann tók við

Tók pizzaofninn með við lok leigutíma og olli skemmdum á húsnæðinu – Sveik loforð um þrif en sagðist þó hafa skilað í betra standi en hann tók við
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árni bendir lögreglu á að hann gengur enn laus – „Hvað veldur?“

Árni bendir lögreglu á að hann gengur enn laus – „Hvað veldur?“