Þetta sagði hann í samtali við CNN og benti á að samhliða því sem rússneskur almenningur finnur fyrir afleiðingum refsiaðgerða Vesturlanda og að rússneskir hermenn koma heim í líkpokum, þá muni andstaðan gegn Pútín og stjórn hans fara vaxandi.
„Rússnesku efnahagslífi blæðir, stríðið er tapað og sífellt fleiri lík hermanna koma heim. Rússar munu upplifa sífellt fleiri vandamál og munu reyna að finna svar við af hverju þetta er að gerast. Þeir munu kíkja á hið pólitíska ferli og segja við sig sjálfa: „Ókei, þetta gerist af því að landinu okkar er stýrt af gömlum harðstjóra, gömlum einræðisherra“,“ sagði Gallyamov og vísaði þarna til Pútíns.
„Þegar hin pólitíska staða breytist og landinu er stýrt af hötuðum og mjög óvinsælum forseta verður einhver að gjalda fyrir öll vandamálin, svo valdarán er raunhæfur möguleiki,“ sagði Gallyamov og bætti við að það geti átt sér stað á næstu 12 mánuðum.
Valdarán gæti verið framið af fólki í innsta hring Pútíns og af þeim sökum er hann fljótur að bola fólki í burtu ef það er orðið of valdamikið. Þetta sagði Flemming Splidsboel, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá Dansk Institut for Internationale Studier í samtali við TV2.
„Hann skiptir reglulega út í innsta hring sínum og það getur verið hluti af valdabaráttu þar sem honum finnst að sumir séu orðnir aðeins of valdamiklir og metnaðargjarnir. Þeir verða að passa sig á því. Eins og stemmningin er í Rússlandi í dag, með gríðarlegri pólitískri einstefnu, gildir að ganga í tak við forsetann,“ sagði hann.
Hann sagðist telja að valdakerfið í kringum Pútín sé mjög stöðugt eins og er. Það sé þó ekki í eins miklu jafnvægi og fyrir stríðið en í heildina virðist það í jafnvægi og að valdhafar hafi stjórn á almenningi.