Ef þetta er rétt þá verður þetta í fyrsta sinn sem Bandaríkin senda Úkraínumönnum langdræg flugskeyti.
Heimildarmenn Reuters segja að hugsanlega verði tilkynnt um innihald hjálparpakkans í þessari viku.
Auk langdrægra flugskeyta er reiknað með að í hjálparpakkanum verði íhlutir og skotfæri fyrir Patriot-loftvarnarkerfi, nákvæmnisstýrð skotfæri og skriðdrekavopn.
Hluti af hjálparpakkanum, eða um 1,8 milljarðar dollara, er sagður koma úr sjóði sem heitir Ukraine Security Assistance Initiative. Með þessum sjóði geta stjórnvöld keypt vopn beint frá framleiðendum í stað þess að sækja þau í birgðageymslur hersins.
Peningar úr sjóðnum verða meðal annars notaðir til að kaupa nýtt vopn sem heitir Ground Launched Small Diameter Bomb sem dregur allt að 150 km. Þetta mun gera Úkraínu kleift að hæfa skotmörk sem hafa verið langt utan skotfæris til þessa.