Þetta kemur fram í stóru viðtali AP-fréttastofunnar við hann. Hann sagði nú þegar sjáist afleiðingar þess að athygli alþjóðasamfélagsins hafi flust frá stríðinu í Úkraínu yfir á stríð Ísraels og Hamas. „Aðeins blindur maður sér þetta ekki. Við verðum að berjast fyrir að viðhalda athyglinni á stríðið í Úkraínu. Við megum ekki leyfa fólki að gleyma stríðinu hér,“ sagði hann.
Hann sagðist óttast að minni athygli þýði minni stuðning frá Vesturlöndum í formi peninga og vopna en það mun gera Úkraínumönnum erfiðara fyrir að verjast rússneska innrásarliðinu.
Það er á brattann að sækja hjá Úkraínumönnum þessa dagana að fá stuðning hjá Bandaríkjamönnum því samkvæmt nýjum skoðanakönnunum þá telur tæplega helmingur Bandaríkjamanna að Úkraína fái of mikinn stuðning frá Bandaríkjunum. Þá fer þeim þingmönnum Repúblikana, sem eru mótfallnir stuðningi við Úkraínu, fjölgandi. Af þeim sökum er óvist hvort Hvíta húsið ná að fá fleiri hjálparpakka fyrir Úkraínu samþykkta í þinginu.
Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum í byrjun nóvember á næsta ári en vegna þeirra er framtíð Úkraínu ansi óviss og það veit Zelenskyy. Hann segist samt sem áður munu virða niðurstöður kosninganna en minnir á að með því að aðstoða Úkraínu séu Bandaríkin að hjálpa sjálfum sér.
„Ef varnargeta Úkraínu minnkar vegna skorts á stuðningi í formi vopna og peninga þá mun Rússland líklega ráðast á NATO-ríki. Þá þurfa bandarísk börn að fara í stríð,“ sagði hann.
Hann sagði að gagnsókn Úkraínumanna í sumar hafi ekki uppfyllt væntingar og sé þar um að kenna skorti á vopnum og hermönnum. „Við vildum skjótan árangur og út frá því sjónarmiði fengum við ekki það sem við vildum. Það er staðreynd,“ sagði hann.