fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Ragnhildur sorgmædd og með brotið hjarta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. desember 2023 12:25

Ragga nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Jólin eru handan við hornið og meðan ráðamenn þjóðarinnar setjast niður til að smjatta á hamborgarhrygg, munu tveir foreldralausir drengir híma ískaldir og svangir á götum Aþenu að berjast fyrir lífi sínu sem ekkert barn á nokkurn tíma að upplifa.“

Þetta segir Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga nagli, í pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni. Þar skrifar hún um mál ungra frænda frá Palestínu og eru búsettir hér á landi. Ef fer sem horfir verða drengirnir báðir sendir til Grikklands þar sem þeirra býður væntanlega fátt nema eymd og volæði.

Fjallað hefur verið um mál drengjanna en þeir dvelja á Íslandi hjá fósturfjölskyldum þar sem vel er hugsað um þá. Ragnhildur skrifar áhrifamikinn pistil um málið á Facebook en málið er henni hjartfólgið enda hefur hún verið í samskiptum við fósturfjölskyldu annars drengsins.

Vonleysi og vantrú á mannkynið

„Naglinn er með brotið hjarta. Vonleysi í sálinni. Vantrú á mannkynið. Tveir palestínskir drengir eiga yfir höfði sér að vera vísað úr landi til Grikklands þar sem þeirra bíða vosbúð, kuldi, örbirgð og ömurð.“

Ragga bendir á að Sameer, 12 ára, og Yazan, 14 ára, hafi gengið hér í skóla, stundað fótbolta, upplifað öryggi og ástúð frá fósturforeldrum. Þeir hafi líka lært íslensku og leikið sér með nýjum félögum.

„Drengir sem komu til Íslands í leit að betra lífi og skjóli fyrir hörmungum heimalands síns. Þar sem þeirra bíður líklega ekkert nema opinn dauðinn. Þjóðarmorð á epískum skala.  Þeirra bíða nöturlegar og viðurstyggilegar aðstæður í Grikklandi.  Með fordæmalausri vanvirðingu og harðneskju yfirvalda og Útlendingastofnunar sendir til að sofa á hörðum trébekk í almenningsgarði í Grikklandi. Þar sem er hrækt á þá. Þar sem þeir þurfa að betla fyrir mat.“

Áhyggjur barna eiga að snúast um eitthvað allt annað

Ragga segir að börn eigi að njóta áhyggjulausrar æsku með sár á hné eftir tæklingu í fótbolta en ekki sprengjubrot í augum.

„Aðaláhyggjurnar eiga að vera bólan á nefinu, en ekki hvort þau fái að borða í dag. Að hafa frelsið til að fara út í eltingaleik í stað þess að híma í sprengjubyrgi heilu dagana. Aðalóttinn sé hvort sæta stelpan sé skotin í þér, en ekki hvort þú lifir daginn af. Að sofa vært á nóttunni í hlýju rúmi en ekki liggja andvaka á hörðu steingólfi í niðursprengdum rústum nötrandi af hræðslu við sprengingar. Að vera með áfallastreituröskun, martraðir, kvíðaköst og ofurvakandi taugakerfi allt sitt líf eftir að hafa upplifað mestu hörmungar og grimmd mannskepnunnar.“

Þyngra en tárum taki

Ragnhildur segir útilokunarstefnu Íslands í innflytjenda- og hælisleitendamálum vera þyngri en tárum taki.

„Land sem trónir á toppi lífsgæða á allri jarðarkringlunni. Land sem ítrekar skorar hæst í lífsgæðum. Með auðlindir og auðmagn, nægilegt pláss og bolmagn til að taka á móti miklu fleiri bágstöddum sem þrá ekkert meira en öryggi. Útlendingastefna sem skellir í lok lok og læs fyrir okkar bágstöddustu börnum…. BÖRNUM….í leit að skjóli og vernd fyrir hræðilegustu aðstæðum sem finnast á jarðarkringlunni og opnum dauða. Lög eru mannanna verk og þeim má breyta því hér passa lög og siðferði ekki saman.“

Hægt er að lesa allan pistil Röggu hér að neðan en í honum hvetur hún einnig lesendur til að láta í sér heyra og senda Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra skýr skilaboð um að drengirnir verði ekki sendir úr landi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“