fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Fréttir

Kona vann loksins erfðamál gegn stjúpbörnum sínum í Hæstarétti – En þá var hún dáin

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 29. desember 2023 19:00

Málið snerist meðal annars um þrjú málverk eftir Jóhannes Kjarval. Ekki þessi þrjú samt. Mynd/Listasafn Reykjavíkur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur Íslands hefur snúið við máli konu gegn stjúpdóttur sinni og stjúpbarnabörnum. Vildi hún fá gjafagjörning á málverkum, sem maður hennar gerði skömmu fyrir andlát sitt, skilgreindan sem arf. Konan tapaði málinu á fyrri dómstigum en vann það í Hæstarétti. Þá var hún hins vegar dáin.

Eiginmaður konunnar hafði ráðstafað átta málverkum til dóttur sinnar og tveggja barnabarna í desember árið 2018. Skjalið hét „Um ráðstöfun málverka minna“ og innihélt þrjú málverk eftir Jóhannes Kjarval og stök málverk eftir Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Þórarinn B. Þorláksson, Jón Stefánsson og Svein Björnsson. Verðmætið er talið vera um 10,5 milljónir króna. Lést maðurinn skömmu seinna.

Kona hans taldi þennan gjörning vera í ósamræmi við sameiginlega erfðaskrá þeirra frá 1. september árið 2016. Stefndi hún því niðjum manns síns til þess að fá gjörninginn ógiltan og gjöfina skilgreinda sem hluta af óskiptum arfi þeirra.

Sat í óskiptu búi

Konan og maðurinn giftust árið 1980 en áttu engin börn saman. Hann eignaðist þrjár dætur í fyrra hjónabandi en stjúpdóttirin í þessu máli er sú eina þeirra sem enn lifir. Barnabörnin eru börn annarrar stjúpdóttur sem er látin.

Samkvæmt erfðaskrá fékk konan að sitja í óskiptu búi en aðrir erfingjar eftir þau hjónin voru systir hennar og systurdóttir sem og Samband íslenskra kristniboðsfélaga.

Fyrir utan málverkin voru eignirnar í búinu nokkrar, meðal annars efnalaug og fasteign. Höfðu þau þó tapað nokkuð á hlutabréfaeign í bankahruninu árið 2008.

Stjúpdóttirin viðstödd undirritun

Eftir að maðurinn hafði skrifað undir gjörninginn, 95 ára gamall, var hann fluttur á sjúkradeild dvalarheimilisins Skógarbæs og lést þar rúmum tveimur mánuðum seinna. Konan fékk ekki að vita af þessum gjörningi og uppgötvaðist hann fyrir tilviljun. Stjúpdóttirin var hins vegar viðstödd undirritunina.

Konan fékk lögmann til að spyrjast fyrir um málverkin og reyna að fá þau afhent til hins óskipta bús sem hún sat í. Síðar var svo farið fram á að verkin yrðu skilgreind sem hluti af óskiptum arfi þessara niðja.

Í svari lögmanns stjúpdótturinnar og barnabarna sagði að þau myndu ekki taka afstöðu til málsins fyrr en að skiptum kæmi, sem sagt eftir að konan væri látin. Stefni hún þeim þá til héraðsdóms.

Dánargjöf

Í maí árið 2021 sýknaði dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur niðjar mannsins af kröfum konunnar. Taldi dómari að með sameiginlegri erfðaskrá hefði maðurinn ekki takmarkað sér svo ráðstöfunarrétti eigna sinna að honum hafi verið óheimilt að gefa þær eins og hann sjálfur kaus og gerði með téðum gerningi. Landsréttur staðfesti þennan dóm í júní árið 2022.

Konan var látin þegar málið kom til Hæstaréttar. Mynd/Eyþór

Þegar málið kom til Hæstaréttar var konan látin en dánarbú hennar hélt málarekstrinum áfram. Þá var niðurstöðunni hins vegar snúið við.

„Að öllu framangreindu virtu verður talið að gjöf sú sem um ræðir hafi eftir efni sínu verið dánargjöf sem lúta þurfti reglum sem um erfðaskrár gilda, sbr. 54. gr. erfðalaga. Þeirra reglna var ekki gætt og er gerningurinn því ógildur,“ segir í dóminum sem féll í dag, 29. desember. Málskostnaður var felldur niður á öllum dómstigum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“

Ragnheiður skoðaði íbúð á föstudegi en á mánudegi var búið að selja hana – „Og hverjum haldið þið?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“

Tvíburasynir Rannveigar og Birgis Þórs fæddust eftir 25 vikna meðgöngu – „Við þurfum að vera til staðar fyrir litlu hetjurnar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“

Sigmundur Davíð – „Gervigreindin að minnsta kosti var með það á hreinu og skilaði því svari að Ísland hefði slitið viðræðunum“