Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness um að erlendur ríkisborgari fái ekki tilbaka farsíma og háar fjárhæðir sem Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði þegar viðkomandi var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 3. maí síðastliðinn.
Maðurinn var handtekinn þegar hann var á leið af landi brott en í dómnum kemur fram að lögreglan hafi þá haft hann um nokkurn tíma til rannsóknar vegna gruns um ætlaða skipulagða brotastarfsemi, innflutning fíkniefna, peningaþvætti og útflutning á ágóða ætlaðrar ólögmætrar starfsemi hér á landi.
Auk farsímans lagði lögreglan hald á 2,1 milljón krónur í íslenskum peningum sem og 17.900 evrur. Alls rétt tæplega 5 milljónir króna.
Manninum var gert að sæta gæsluvarðahaldi til 5. júlí 2023 en eftir að honum var sleppt úr haldi var honum gert að sæta tilkynningarskyldu allt fram til 6. október þegar því var aflétt og hann fékk afhent vegabréf sitt aftur. Lögreglan neitaði hins vegar að afhenda farsímann og peningana.
Fyrir dómi sagði lögmaður mannsins að hann hafi verið samvinnuþýður við lögreglu og gefið greinargóðar skýringar á uppruna fjársins sem hafi tengst tilteknum viðskiptum hér á landi. Hafi hann komið til landsins til að sækja fjármunina fyrir vin sinn.
Mikill dráttur hafi verið á rannsókn málsins og það bendi til þess að ekki hafi tekist að sanna tengsl mannsins við skipulagða glæpastarfsemi.
Lögmaður lögreglunnar var þessu ósammála. Rannsóknartími málsins hefði verið hóflegur en rannsókninni væri nú lokið og biði ákæru. Frásögn hins grunaða hefði yfir sér mikinn ólíkindablæ og væri í ósamræmi við gögn málsins. Lögreglan væri því í fullum rétti að leggja hald á munina.