fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Fréttir

Þetta hefur Einar að segja um veðrið næstu daga – Reiknar með djúpri lægð rétt fyrir jól

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. desember 2023 10:00

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að reiknað sé með mjög djúpri lægð rétt fyrir jól. Einar fór yfir veðrið næstu daga og um jólin í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Einar segir að í dag hlýni og hláni víðast hvar á landinu og má búast við slagveðursrigningu í dag um sunnan- og vestanvert landið. Þessu mun ekki fylgja mjög hvass vindur nema austast á landinu.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna veðurs á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Suðausturlandi og taka þær gildi í nótt.

Gerist snöggt

Einar segir að lægðin sem kemur í nótt sé að dýpka á sunnanverðu Grænlandshafi. „Svo slengir hún inn svona élja- eða skúrahryðjubakka í nótt og það gerist tiltölulega snöggt,“ sagði hann. Það hvessir því talsvert af suðvestri í nótt og taka gulu viðvaranirnar til þess.

Einar segir að á sama tíma og þetta gerist muni kólna í lofti og má búast við éljum eða snjókomu á Hellisheiðinni til dæmis. Fyrst í stað verða skúrir og slydda á láglendi.

„Síðan gengur þessi lægðasnúður norður yfir landið og veðrið lagast síðan aftur þegar birtir, eða jafnvel fyrir birtingu. Þegar þetta gengur yfir þá kólnar heldur og þá fer að bera meira á éljum í föstu formi. Það getur farið að hvítna á láglendi þegar líður á daginn. Það mun snjóa og verða hvítt sunnan- og vestanlands,“ sagði Einar í Bítinu.

Vetrarlegt á höfuðborgarsvæðinu

Aðspurður hvort við eigum von á mikilli snjókomu á höfuðborgarsvæðinu sagði Einar að þetta verði ekki mjög mikið. „Þetta gerist allt voðalega hratt. Þessi éljagangur hann er seinni partinn á morgun og heldur alveg áfram fram á föstudag og það verður vetrarlegt um að litast um sunnan- og vestanvert landið.“

Hann segir að á föstudag muni koma upp að landinu hraðskreið lægðabylgja og þá muni aftur hlána og snjó taka upp á láglendi. „Svo endar það aftur á snjóföl þannig að við erum komin í umhleypingaskeiðið,“ sagði Einar sem bætti við að veðrið ætti nú að róast um helgina. Það mun þó ekki vara mjög lengi því spár geri ráð fyrir rysjóttri tíð í næstu viku.

„Ég sé hér í spá sem kom í morgun að það er reiknað með mjög djúpri lægð í kringum vetrarsólstöður, 20. til 21 desember. En það er langt í það og með slíkum lægðum – ef þær eru djúpar – fylgir mikil úrkoma, mest rigning og slydda.“

Kólnandi veður eftir lægðina

Einar vildi ekki tjá sig mikið um jólaveðrið eða hvort það verði rauð jól. „Ég er ekkert að segja neitt um það. Það er langt þangað til og það á mjög mikið eftir að gerast. Ef menn eru að horfa á það sem er að gerast 24. og 25. desember þá getur brugðið til beggja vona í þessum umhleypingum,“ sagði hann og bætti við:

„Það eina sem spárnar gefa skýrt til kynna er það að í kjölfarið á þessari djúpu lægð í kringum vetrarsólstöðurnar – ef af henni verður – þá snýst í norðanátt um einhvern tíma með kólnandi veðri.“

Einar segir að þó að vetrarlegt verði um að litast á höfuðborgarsvæðinu síðar í vikunni eigi hann ekki von á erfiðri færð að sinni. Í borginni verði þetta „venjulega aðventuslabb“ og stundum einhver hálka en á fjallvegum og heiðum geti akstursskilyrði orðið krefjandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona miklum peningum eyddi Reykjavíkurborg í ferðir á einu og hálfu ári

Svona miklum peningum eyddi Reykjavíkurborg í ferðir á einu og hálfu ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Perri í Grasagarðinum – „Dóttir mín var mjög hrædd“

Perri í Grasagarðinum – „Dóttir mín var mjög hrædd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arkitekt telur hægt að bjarga Álfabakkamálinu – Erfiðara að endurvekja traust á skipulagi borgarinnar

Arkitekt telur hægt að bjarga Álfabakkamálinu – Erfiðara að endurvekja traust á skipulagi borgarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján fengið nóg: „Ónæðið held­ur áfram og byrjaði nú síðast klukk­an 7 í morg­un“

Kristján fengið nóg: „Ónæðið held­ur áfram og byrjaði nú síðast klukk­an 7 í morg­un“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu

Álftnesingur réðst á lögreglumann í Valsheimilinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bryggjan brugghús komið á sölu

Bryggjan brugghús komið á sölu