Aðalmeðferð hófst í morgun við Héraðsdóm Norðurlands eystra í Ólafjarðarmálinu, en þar er Steinþór Einarsson ákærður fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana í íbúð á Ólafsvegi á Ólafsfirði aðfaranótt mánudagsins 3. október 2022.
Tómas Waagfjörð lést af stungusárum en hann hafði sjálfur meðferðis hníf er hann kom í íbúðina þar sem Steinþór og eiginkona Tómasar voru fyrir. Steinþór ber við sjálfsvörn.
Meðal þeirra sem bera vitni í dag er ungur maður sem kom á vettvang um 20 mínútum á undan lögreglu og sjúkraliði. Íbúðin var þá öll einn blóðvöllur og aðkoma mjög óhugnanleg. Aðalvitnið í málinu, ekkja Tómasar Waagfjörð, er hins vegar látin. Óvíst er hvaða áhrif það hefur á málið. Fastlega má búast við vitnisburði frá lögreglumönnum en ljóst er að einnig verður stuðst við tæknileg gögn er t.d. varða áverka á báðum mönnunum eftir atburðinn.
Í ákæru segir að Steinþór hafi banað Tómasi með því að stinga hann tvisvar í vinstri síðu með hnífi. Í greinargerð Snorra Sturlusonar, lögmanns Steinþórs, er því hafnað að Steinþór hafi stungið Tómas með hnífnum og því haldið fram að Tómas hafi orðið fyrir stungunum er Steinþór var að verjast atlögu hans. Ljóst er að Steinþór mun halda sjálfsvörn til streitu sem vörn í málinu.
Héraðssaksóknari krefst þess að Steinþór verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Gerðar eru kröfur um miskabætur og skaðabætur (vegna missis framfærslu) fyrir hönd tveggja barna Tómasar, annað er fætt árið 2018 og hitt 2015. Miskabótakröfur fyrir hvort barn nema 6 milljónum króna og skaðabótakröfur 6,5 milljónum fyrir yngra barnið og um 4,5 milljónir króna fyrir eldra barnið.