fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Fjárhagslegt ofbeldi oft sett upp með rómantískum hætti – „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur því ég sé fyrir okkur“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 1. desember 2023 11:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Grunnurinn í ofbeldis-samböndum er andlegt ofbeldi en með því er verið að tryggja að þolandi sé hliðhollur geranda sem kemur í veg fyrir að viðkomandi yfirgefi sambandið. Minna er talað um fjárhagslegt ofbeldi þrátt fyrir að sú birtingarmynd ofbeldis taki í burtu það öryggi að geta staðið á eigin fótum og sé ein helsta ástæðan fyrir því að þolandi fari aftur til geranda. Fjárhagslegt ofbeldi getur komið fram í ólíkum birtingarmyndum. Oftast er það þannig að þolandi hefur takmarkaðan aðgang að fjármunum, gerandi tekur peninga af þolanda eða kemur þolanda í miklar skuldir,“

segir Karen Birna V. Ómarsdóttir ráðgjafi hjá Bjarkarhlíð í pistli á Vísi. 

1 af hverjum 3 konum verður fyrir ofbeldi í nánum samböndum

Segir hún síðustu tölur frá Sameinuðu þjóðunum sýna fram á að 1 af hverjum 3 konum verður fyrir ofbeldi í nánum samböndum í gegnum lífsleiðina. Bendir Karen þó á að allir geta orðið fyrir ofbeldi í nánum samböndum óháð kyni og kynhneigð. Eins geta öll kyn beitt ofbeldi en eru líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum. 

Karen leggur áherslu á einangrunina sem felst í fjárhagslegu ofbeldi og hvernig þessi aðferð getur læðst aftan að manni. Segir hún það að vera hluti af vinnustað veiti ekki bara fjárhagslegt öryggi heldur efli einnig félagslíf einstaklinga. 

„Manneskja með ofbeldishegðun getur séð ógn í því að makinn sinni vinnu eða námi þar sem að það gerir það að verkum að erfiðara er að fylgjast með ferðum makans, við hvern makinn talar og um hvað. Þannig heldur gerandi oft maka sínum frá vinnu eða námi. Gerandi getur sannfært maka sinn um að hann sé ófær um að sinna vinnunni. Gerandi heldur vöku fyrir honum daginn fyrir vinnu til dæmis með rifrildi. Hann á það til að áreita maka með stanslausum símhringingum eða skilaboðum svo erfitt verður að sinna vinnunni. Gerandi sér til þess að þolandi verður seinn í vinnu meðal annars með því að fela lykla, skilja bílinn eftir batteríslausan eða gerir lítið úr og gagnrýnir maka. Gerandi getur reynt að sannfæra maka sinn um að hætta í vinnunni til dæmis með því að koma fyrir samviskubiti vegna barnanna eða annarra heimilisstarfa en einnig með því að gefa loforð um að sjá fyrir þeim báðum: „Þú getur bara verið heima með börnin og séð um heimilið.“ „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur því ég sé fyrir okkur.“ Út á við er ástandið teiknað upp sem rómantísk mynd. „Nei veistu konan mín hún þarf ekki að vinna.“

Hægt er að lesa nánar um fjárhagslegt ofbeldi á 112.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?