Afar sjaldgæft er, og jafnvel einsdæmi, að ráðherra mæti í viðtal ásamt foreldri sínu, en slíkt viðtal má nú lesa á vefsíðu SOS Barnaþorpanna. Mæðgurnar Fjóla Ásgeirsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra segja frá því á frjálslegan og skemmtilegan hátt hvernig opinber heimsókn Þórdísar sem utanríkisráðherra til Malaví í desember árið 2022 setti af stað atburðarrás innan fjölskyldunnar sem svo náði hámarki á aðfangadagskvöld það ár.
Viðtalið við mæðgurnar var tekið upp í ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar sem vakti mikla athygli eins og DV greindi frá fyrir stuttu.
Sjá einnig: Þórdís Kolbrún skúrar gólfið með virkum í athugasemdum – „Takk fyrir hlýja kveðju“
Fyrir ári var Þórdís stödd í Malaví að endurnýja samning Íslands og Malaví í þróunarsamvinnu og heimsótti þar meðal annars SOS barnaþorp í höfuðborginni Lilongve. Sagt var frá þessari heimsókn í fjölmiðlum á Íslandi og var móðir Þórdísar, Fjóla, stödd heima á Akranesi þegar hún las fréttirnar. Fjóla vissi að dóttir sín væri að fara til Malaví en hafði ekki hugmynd um að heimsókn í þetta barnaþorp væri á dagskrá. Fjóla hefur verið SOS-foreldri stúlku í þessu barnaþorpi síðan 2012 og áttaði hún sig strax á að dóttir sín hefði verið í barnaþorpinu þar sem styrktarbarn Fjólu býr.
„Ekki fyrr en ég sá í fjölmiðlum hvar hún var stödd. Og þá bara, vá, þetta er þar sem stúlkan mín er. Þannig að ég sendi bara allar upplýsingar í SMS og svo fæ ég bara svarið; ó, ég sem var þar í gær,“ segir Fjóla sem spurði svo hvort Þórdís gæti ekki farið aftur í barnaþorpið, en Þórdís hafði ekki haft hugmynd um að styrktarbarn móður hennar byggi þar fyrr en hún las skilaboðin frá móður sinni.
Þórdísi tókst að gera sér ferð aftur í barnaþorpið til að hitta stúlkuna og sagði móður sinni ekki frá þessari seinni heimsókn.
„Það var þétt dagskrá þessa daga sem við vorum í Malaví en Inga Hrefna aðstoðarmaður minn, gengur almennt kröftuglega til verks og sagði bara: „Við leysum þetta, við finnum út úr þessu,“ rifjar Þórdís sem hitti einnig tvíburasystur stúlkunnar sem einnig býr á sama heimili og á líka SOS-foreldri á Íslandi, á Skagaströnd.
„Þær eru ótrúlega ólíkar týpur. Systir hennar er mjög opin og frökk og ætlar að verða hjúkrunarfræðingur, gengur um í kjólum og hælum, á meðan stelpan hennar mömmu er mjög hlédræg. Ég ákvað að segja mömmu ekki frá því að ég hefði farið aftur. Ég lét taka myndir af okkur og sýndi henni myndir af mömmu og fjölskyldunni.“
Þórdís sá þarna tækifæri til að gefa mömmu sinni frumlega og ógleymanlega jólagjöf. Mynd af sér með stúlkunni sem Fjóla styrkir. Þessu tókst Þórdísi að halda leyndu fyrir móður sinni þar til á aðfangadagskvöld en þá vissi öll fjölskyldan af því hvað leyndist í litlum pakka sem Fjóla opnaði. Allir iðuðu af eftirvæntingu.
„Það var mikill spenningur, þetta var aðalgjöfin,“ segir Þórdís en Fjóla gerði sér ekki strax grein fyrir því að styrktarbarnið hennar til síðustu tíu ára væri á myndinni með Þórdísi.
„Hún hélt fyrst að þetta væri bara minjagripur frá Malaví og var rosalega ánægð með það. Pabbi situr við borðstofuborðið og spyr hvort þetta sé ekki stelpan á ísskápnum, því hún er með mynd af henni þar.“ Því tók Fjóla ekki trúanlega fyrr en Þórdís staðfesti það og eftir að hafa borið myndirnar saman var hún sannfærð og nærstaddir táruðust.
„Þá lít ég á tengdamömmu sem situr í horninu og það eru komin tár, og mamma fékk gæsahúð,“ segir Þórdís og Fjóla tekur hlæjandi undir. „Þetta er ekki gjöf sem þú býst við. Maður bara klökknaði. Ég held að maður eigi aldrei eftir að upplifa þetta aftur,“ segir Fjóla sem hefur fylgst með uppvexti stúlkunnar í 11 ár en hún er 14 ára í dag.
Fjóla segist einnig hafa glaðst sérstaklega yfir því að geta slökkt í efasemdaröddum fólks sem treysti því ekki að framlög Fjólu væru að fara á réttan stað. „Það er oft sem ég fæ að heyra, hvað ertu að þessu, þú veist aldrei hvort þetta skilar sér eða ekki. Núna get ég sko aldeilis sagt þeim því mér hefði aldrei dottið í hug að ég fengi svona rosalega sönnun fyrir því að þetta er að skila sér,“ segir Fjóla og Þórdís rifjar hlæjandi upp ummæli móður sinnar. „Það er einmitt það sem hún sagði: „Nú skal ég sko segja þeim það.““
Fjóla minnist þess glottandi að þegar hún var lítið barn hafi hún verið mjög dökk á hörund, ólíkt öðrum íslenskum börnum á þeim tíma. „Í þá daga var ekki mikið af útlendingum á Íslandi. Ég fékk oft að heyra að ég væri ekki íslensk, hvaðan pabbi minn væri og ég væri eitthvað svona… barn,“ segir Fjóla. Þegar hún svo byrjaði að styrkja þriggja ára gamla stúlkuna í SOS barnaþorpinu í Malaví fékk hún mynd af henni og þá hafi systur hennar gantast með líkindin. „Þetta gæti bara verið þú þegar þú varst lítil,“ hefur Fjóla skellihlæjandi eftir systrum sínum.
Sjálf hefur Þórdís styrkt börn í SOS barnaþorpum í Suður Ameríku frá árinu 2015. „Maðurinn minn var skiptinemi í Paragvæ þannig að ég stakk upp á því að við myndum styðja við barn þar,“ segir Þórdís, sem vildi fara að fordæmi móður sinnar og láta gott af sér leiða. Síðar þegar það barn flutti úr barnaþorpinu hafa þau hjón styrkt börn í Perú og gera ennþá.
Aðspurð játar Þórdís því að sem utanríkisráðherra heyri hún einhverja Íslendinga halda því fram að við ættum fyrst að hjálpa bágstöddum hér á landi áður en við hjálpum erlendis. „Lífið er flókið, verkefnin klárast aldrei. Það klárast aldrei að bæta lífskjör fólks. Það eru alltaf samfélagsleg vandamál í öllum samfélögum. Þú upprætir þau ekki. Þú gerir það heldur ekki þó þú hættir að taka þátt í þróunarsamvinnu.“
„Þú færð enga hamingju út úr lífinu nema þú gefir eitthvað af sjálfum þér,“ bætir Fjóla við.
Ef lesendur hafa áhuga á að verða SOS foreldri og styrkja barn má lesa betur um það hér.