McHenry Venaani, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins PDM í Namibíu, hyggst senda bréf til Katrínar Jakobsdóttur og hvetja hana til að hætta stuðningi við útgerðarfélagið Samherja. Hann sakar íslensk stjórnvöld um að taka Samherjamálið ekki nægilega alvarlega.
„Þau verða að sniðganga þetta fyrirtæki frá því að fá opinbera styrki, jafn vel þó þetta sé innlent fyrirtæki,“ segir Venaani við namibíska dagblaðið The Namibian. „Ég mun skrifa bréf til forsætisráðherra Íslands og krefjast þess að Samherji borgi bætur til namibísks almennings fyrir peningana sem þau hafa tapað vegna málsins og að Ísland verði að gera sitt til að draga þetta fólk til ábyrgðar.“
Ummælin voru vegna þess að Samherji hlaut á dögunum 100 milljón króna styrk frá Orkusjóði til að hanna lausnir fyrir togara til að nýta rafeldsneyti.
Í frétt The Namibian er greint frá því að blaðið hafi innt Samherja eftir svörum um málið símleiðis og með tölvupósti en ekki haft erindi sem erfiði.
Einnig er rætt við suður afrískan sérfræðing í verkalýðsmálum, Herbert Jausch að nafni, sem segir að meðferð íslenskra stjórnvalda á Samherja varpi skugga á þær vonir að yfirmenn verði framseldir til Namibíu.
Hafa ber þó í huga að íslenskum stjórnvöldum er samkvæmt lögum bannað að framselja eigin ríkisborgara.
„Þetta er merki þess að íslenska ríkisstjórnin tekur Fishrot spillingarskandalinn mjög alvarlega…. engin hefur verið handtekinn á Íslandi,“ segir Jausch.
Samherjarannsóknin hefur staðið yfir í um fjögur ár. Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, sagði í viðtali við RÚV fyrr í haust að heimsfaraldurinn hefði tafið rannsóknina sem og að embættið væri að bíða eftir gögnum frá Namibíu. Það væri þó langt því frá einsdæmi að mál tækju svo langan tíma. Vísaði Ólafur til hrunmála í því samhengi.
Í lok október var greint frá því að gögnin hefðu loks borist, meðal annars bankaupplýsingar um átta félög tengd Samherja og sextán önnur namibísk félög sem tengjast Samherjamálinu. Einnig bakgrunnsupplýsingar um tíu Namibíumenn, ársreikningar, vitnaskýrslur og margt fleira.
Verið er að fara yfir þessi gögn en einnig vill héraðssaksóknari sjálfur yfirheyra fólk í Namibíu.