Í tilkynningu sem var að berast frá Almannavörnum segir Lögreglan á Suðurnesjum hafi tekið þá ákvörðun að loka Norðurljósavegi við Svartsengi fyrir almennri umferð. Ákvörðunin sé tekin í ljósi jarðhræringa og minnkandi starfsemi á svæðinu. Veginum verði lokað annars vegar við gatnamót Grindavíkurvegar og hins vegar við Nesveg. Haft hafi verið samband við hlutaðeigandi rekstraraðila og þeim kunngerð ákvörðunin. Lokunin hafi ekki gildi gagnvart starfmönnum fyrirtækja á svæðinu.