fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Fundu bein úr skjaldböku og geirfugli í Lindisfarne

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 8. október 2023 18:00

Mikill uppgröftur fer nú fram á Lindisfarne. Mynd/samsett/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn við Durham háskóla í Bretlandi hafa grafið upp ýmis dýrabein í klaustrinu fræga í Lindisfarne. Meðal annars bein af skjaldböku og geirfugli, hinum útdauða sjófugli.

„Við erum að gera merkar uppgötvanir hérna. Bæði úti á vettvangi fornleifauppgraftarins og á rannsóknarstofunum þar sem við greinum munina,“ segir David Petts, doktor við háskólann við staðarmiðilinn Northumberland Gazette.

Uppgröfturinn er unninn í samstarfi við DigVentures, fyrirtæki sem hópfjármagnar fornleifauppgrefti.

Lindisfarne er eyja við norðausturströnd Englands, stunum þekkt sem Eyjan helga í ljósi þess að hún var helsta miðstöð kristniboðs á Englandi á ármiðöldum. Þann 8. júní árið 793 réðust norrænir menn á klaustrið, brenndu, drápu og rupluðu. Er sá viðburður talinn marka upphaf víkingaaldar.

Fyrsta skjaldbakan

Rannsóknirnar beinast meðal annars að því að rannsaka dýrabeinin í klaustrinu til þess að sjá hvaða dýr íbúarnir höfðu til matar eða annara nota. Margt hefur komið á óvart í þeirri fjölbreyttu flóru.

„Það kemur ekki á óvart að við höfum fundið bein hefðbundinna húsdýra, nautgripa, sauðfjár og svína, en við höfum einnig sannanir fyrir því að íbúarnir borðuðu mikið af sjávarfangi,“ segir Petts.

Hafa fundist bein af þorski, skötusel, löngu, ál, ýsu, bergsnapa og hákarli svo dæmi séu tekin. Einnig af sjófuglum eins og lunda, mávi og teista. „Á síðasta ári fundum við í fyrsta skipti bein af geirfugli, sem er nú útdauður,“ segir hann.

Sjávarspendýrabein hafa fundist, svo sem af hval og selum. Ekki er ólíklegt að íbúarnir hafi notað af þeim kjötið, fituna og olíuna.

„Líklega er óvæntasti fundurinn þó beinflís úr skjaldböku. Við höldum að þetta sé í fyrsta sinn sem skjaldbökubein finnst í fornleifauppgreftri í Bretlandi,“ segir Petts.

Ræsi hugsanlega frá fornöld

Í uppgreftrinum hafa einnig fundist mannvirki sem eru líklega eldri en klaustrið sjálft. Það eru leifar af stóru ræsi og fráræsisskurði sem liggja undir þeim steinveggjum sem verið er að rannsaka.

Að sögn doktor Petts stendur til að gera aldursgreiningu á þessum mannvirkjum til að sannreyna að um fornaldar mannvirki sé að ræða.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“