fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Fósturforeldri palestínskra drengja segir hjásetu Íslands smánarblett – „Nánast í hvert skipti fáum við nýja andlátsfrétt“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 30. október 2023 11:15

Hanna og Einar Þór hafa verið fósturforeldrar í tæp 20 ár. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fósturforeldri sem tók að sér fylgdarlausa drengi frá Palestínu segir það smánarblett á Íslandi að hafa ekki stutt við mannúðarvopnahlé á Gaza. Í hvert skipti sem samband næst við fjölskyldu og vini drengjanna á Gaza séu færðar andlátsfréttir af nákomnum.

„Við höfum aldrei staðið í þessum sporum áður. Að vera með fólk í kringum sig sem er að verða fyrir þessu. Þeir eiga báðir foreldra og þrjú systkini á Gaza,“ segir Hanna Símonardóttir.

Hún og maður hennar, Einar Þór Magnússon, hafa verið fósturforeldrar í tæp tuttugu ár og verið með flóttabörn áður. Í vor fengu þau beiðni um að taka að sér tvo drengi, frændur á aldrinum 12 og 14 ára í gegnum barnavernd. Þau voru með flóttabarn fyrir þannig að þau gátu aðeins tekið annan drenginn að sér en sonur þeirra Magnús Már og tengdadóttir Anna Guðrún tóku að sér hinn.

Hanna segir að stríðið, sem hófst í byrjun mánaðar og hefur farið síversnandi, hafi haft hrikaleg áhrif á drengina. Þegar netsamband næst, sem er af og til, koma ekkert nema slæmar fréttir af fjölskyldu og vinum drengjanna.

„Nánast í hvert skipti fáum við nýja andlátsfrétt. Afi, nágranni, vinur, frændsystkini,“ segir Hanna. Álagið og óvissan er gríðarleg.

Smánarblettur á Íslandi

Hanna segir það hafa verið risaáfall að heyra að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum um mannúðarvopnahlé á Gaza síðastliðinn laugardag.

„Ég hef ekki sett mig inn í hvaða símtöl áttu sér stað áður en það var ákveðið að sitja hjá. Þeir sem tóku ákvörðunina eru að gera það fyrir heila þjóð,“ segir Hanna.

Hjáseta Íslands hefur vakið reiði og vonbrigði hjá mörgum.

Íslenska þjóðin sitji nú uppi með þennan smánarblett og erfitt sé að útskýra þetta fyrir þeim sem búa við þessi stríðsátök.

„Það er skellur fyrir þá sem búa við þessi stríðsátök að þjóð eins og Ísland styðji ekki við tillögu um vopnahlé,“ segir Hanna.

Galin afsökun utanríkisráðherra

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, hefur afsakað hjásetu Íslands með því að það hafi vantað fordæmingu á Hamas samtökunum inn í ályktunina sem lá fyrir hjá Sameinuðu þjóðunum. Hanna segir þetta ekki halda vatni.

„Það kemur málinu ekki við. Það er alveg hægt að fordæma Hamas með öðrum hætti en að það þurfi að vera inni í sömu ályktun. Þetta er galin afsökun,“ segir hún.

Aðspurð um hvað hún myndi vilja að íslensk stjórnvöld gerðu segir hún myndi vilja sjá þau reyna að leiðrétta atkvæðagreiðsluna með einhverjum hætti. Það er að koma því á framfæri með skýrum hætti að þau hefðu skipt um skoðun og styðji mannúðarvopnahlé á Gaza skilyrðislaust.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði