Undarlegir atburðir hafa gerst hjá BKNE, bandalagi kennara á Norðurlandi eystra, undanfarin sólarhring. Færsla var sett inn í gær á Facebook síðu félagsins um að nýlegt formannskjör væri ógilt en tekin út skömmu seinna.
Félagið, sem er í raun deild innan innan Félags grunnskólakennara í Kennarasambandinu, hefur verið mikið í deiglu fjölmiðlanna vegna aðalfundar sem haldinn var þann 5. október síðastliðinn. En þar var samþykkt reglubreyting á styttingu stöðu formanns félagsins og nýr formaður kjörinn.
Allt virtist þetta gert til þess að koma þáverandi formanni, Helgu Dögg Sverrisdóttur kennara við Síðuskóla, úr formannsstólnum sem fyrst. En skrif hennar um transfólk hafa farið mjög fyrir brjóstið á samkennurum, foreldrum, bæjarfulltrúum og fleirum.
Um fjögurleytið síðdegis í gær birtist mjög óvænt færsla á Facebook síðu BKNE þar sem fullyrt var að kosningin hefði verið ógild og að nýr formaður gæti ekki tekið við. Það er Hanna Dóra Markúsdóttir, kennari við Brekkuskóla.
„Stjórn deildarinnar ber að axla ábyrgð á gjörðum sínum, fundarstjóra, formanni Félags grunnskólakennara og stjórnarmanni Fg sem voru á fundinum án þess að grípa inn í. Eftir blaðaumfjöllun höfðu fjölmargir samband við formanninn og bentu á lögbrotið,“ stóð í færslunni.
Einnig stóð að lögmaðurinn Arnar Þór Jónsson hefði verið fenginn til þess að skoða atburðarásina og hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið boðað til fundarins með nægilegum fyrirvara og að ekki hafi verið gefinn nægilegur fyrirvari til kosningu nýs formanns.
En Arnar Þór hefur vakið athygli að undanförnu fyrir skrif sín um transfólk, covid-bóluefni, loftslagsmál og tekið stöðu með andstæðingum.
„Vonandi verður þessi leiði og óheppilegi atburður til þess að allir læri af honum,“ sagði í lok færslunnar.
Nokkur umræða spannst við færsluna á meðal kennara og var sumum augljóslega heitt í hamsi. Var sagt að þetta væri leikrit og að Helga Dögg hefði ekki stuðning kennara í félaginu. Eftir nokkra klukkutíma var færslunni svo eytt án skýringa. Engin önnur færsla hefur birst hjá félaginu síðan þá.
DV hefur reynt að ná í fólk vegna málsins en ekki haft erindi sem erfiði.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandins, er staddur erlendis og segist ekki hafa mikla snertingu við félagið. Þar séu sér lög og sér verklag sem formaður og félagsmenn svara fyrir.
Ekki náðist í Mjöll Matthíasdóttur formann Félags grunnskólakennara, sem er einnig erlendis, en hún er jafn framt kennari á Húsavík og félagi í BKNE. Ekki hefur heldur náðst í nýjan formann, Hönnu Dóru Markúsdóttur, ef hún er þá formaður félagsins yfir höfuð. Upplýsingar um aðra stjórnarmenn liggja ekki fyrir hjá Kennarasambandinu.
Á þessari stundu liggur því ekki fyrir hvort að fundurinn þann 5. október hafi verið ólöglegur eða hvort að færslan hafi verið misheppnuð tilraun til þess að reyna að snúa kosningunni við.