Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands og formaður Skoska þjóðarflokksins, er komin með bílpróf. Í gær birti hún mynd af sér með ökukennaranum sínum þar sem hún tilkynnti að hún hefði náð prófinu í fyrstu tilraun.
„Þetta gerðist í dag, á þeim góða aldri 53 ára náði ég bílprófinu (í fyrsta sinn),“ sagði hún í færslu á samfélagsmiðlum.
Sturgeon tilkynnti afsögn sína úr embætti þann 15. febrúar síðastliðinn eftir 8 ár í starfi. Tók hún gildi í lok mars eftir að Humza Yousaf var kjörinn eftirmaður hennar.
Sturgeon sagði álag í einkalífinu vera ástæðuna fyrir afsögninni. En hún kom um svipað leiti og rannsókn á fjármálum Skoska þjóðarflokksins stóð yfir. Sturgeon var handtekin og yfirheyrð vegna málsins en sleppt sama dag án þess að vera kærð.
„Þessi reynsla hefur tekið mig langt fyrir utan þægindarammann minn. En vonandi sannar þetta að það er aldrei of seint að prófa eitthvað nýtt,“ segir Sturgeon í færslunni. „Ég hefði aldrei geta gert þetta án frábæra kennarans míns Andy MacFarlane hjá Caledonian Learner Driver Training. Það var mjög mikilvægt fyrir mig sem 53 ára gamlan fyrrverandi fyrsta ráðherra að hafa ekki bara frábæran kennara heldur einhvern sem ég gat treyst og leið vel með. Andy var það og meira,“ segir hún.
Frekar lítið hefur farið fyrir Sturgeon undanfarið en hún var einn mest áberandi stjórnmálamaðurinn í Bretlandi um langt skeið. Hún mætti hins vegar á ársfund Skoska þjóðarflokksins í Aberdeen fyrr í mánuðinum og fékk mikið lófaklapp þar.