Fundur Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og Humza Yousaf, fyrsta ráðherra Skotlands, í New York í síðasta mánuði fór öfugur ofan í utanríkisráðherra Bretlands. Yousaf var án fylgdarmanns frá breska utanríkisráðuneytinu.
Greint er frá þessu í breska dagblaðinu The Telegraph.
James Cleverly, utanríkisráðherra Bretlands, setti reglur í apríl síðastliðnum um að allir fundir ráðherra Skotlands með ráðherrum erlendra ríkja eða þjóðhöfðingjum þyrftu að vera skipulagðir af breska utanríkisráðuneytinu. Einnig að fulltrúi utanríkisráðuneytisins þyrfti að vera viðstaddur á fundunum.
Ættu þessir fylgdarmenn að sjá til þess að ráðherrarnir væru ekki að breiða út boðskap á alþjóðavettvangi um aðskilnað Skotlands og Bretlands. En Skoski þjóðarflokkurinn, sem hefur aðskilnað á stefnuskránni, hefur stýrt heimastjórninni um langt skeið.
Yousaf, sem tók við embætti af Nicolu Sturgeon í mars síðastliðnum, hefur í tvígang fundað með Katrínu. Annars vegar í Edinborg í Skotlandi í ágúst og hins vegar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York fyrir þremur vikum síðan, þar sem þau ræddu einkum um baráttuna gegn heimilisofbeldi.
Það er einkum þessi seinni fundur sem fór fyrir brjóstið á Cleverly og hefur hann sent skosku heimastjórninni bréf þar sem kvartað er yfir honum.
Í bréfinu ítrekar Cleverly reglur sínar um að skoskir ráðherrar þurfi að hafa fylgdarmann til að tryggja „samhæfð og samfelld skilaboð til félaga okkar út um allan heim.“
Einnig segir hann að ef Skotar halda áfram að brjóta þessar reglur mun ráðuneytið hætta að liðka til fyrir fundum á milli skoskra ráðherra og ráðherra annarra ríkja. En á dagskrá Yousaf fram að áramótum eru átta utanlandsferðir þar sem hann mun funda með ráðherrum, meðal annars í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Indlandi.
Í skoska blaðinu The National er sagt að líklegt sé að Yousaf og Skoski þjóðarflokkurinn hundsi bréf Cleverly. Bréfinu hefur ekki enn verið svarað formlega.
Angus Robertson, utanríkis og stjórnarskrárráðherra Skotlands, sagði reglur Cleverly í raun tilraun hans til að ristkoða skoska ráðherra.