Örn Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnurekandi, segir að einu alvörugjafakortin fyrir Íslendinga séu í raun Bandaríkjadollar sem breyta megi í verðmæti alls staðar í heiminum.
Örn segir farir sínar ekki sléttar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag en hann kveðst hafa heimsótt miðasölu Borgarleikhússins fyrir nokkrum dögum til að nýta einhver af þeim fjölmörgu gjafabréfum sem hann í leikhúsið.
Hann segir að gjafakort í Borgarleikhúsið hafi verið móður hans heitinni hugleikin og hún gefið heilu umslögin bólgin af þessum kortum við hvert tækifæri.
„Slíkur var fjöldi þessara korta að ég og eiginkona mín komumst engan veginn yfir að nýta þau áður en önnur birtust og því safnaðist þetta upp hjá okkur. Nú, fjórum árum frá því að sú gamla kvaddi þennan heim, eigum við enn dálítinn bunka sem við erum að reyna að nýta upp,“ segir hann meðal annars.
Á dögunum var svo komið að því að reyna að nýta þessi kort.
„Ég verð nú að viðurkenna að ég er svolítið grænn í þessum efnum og taldi að texti á gjafakortinu sem segir að gegn framvísun þess fengi ég afhentan einn miða á sýningu að eigin vali ætti að túlka með þeim hætti að skiptin væru á jöfnu. En því var nú aldeilis ekki að heilsa. Til að fá einn miða þurfti ég að reiða fram tvö gjafakort og reyndar gott betur,“ segir Örn og bætir við að blásið hafi verið á athugasemdir hans um að í gjafabréfinu stæði að hann ætti að fá einn miða á sýningu að eigin vali.
„Kona á besta aldri sem afgreiddi mig tjáði mér að gjafakortin væru ekki verðtryggð en jafnvel því sýndi ég lítinn skilning þar sem ekki var tiltekin nein sérstök upphæð á kortunum heldur aðeins einn miði á sýningu að eigin vali. Það varð mér sennilega til bjargar að verða ekki snúinn niður og járnaður á staðnum að nefnd kona var einstaklega geðug með húmorinn í lagi og hló hún bara að þessum nöldrara sem taldi sig hlunnfarinn. Þarna fékk ég í raun aðeins pláss undir aðra rasskinnina og tæplega það fyrir gjafakortið,“ segir Örn í grein sinni í Morgunblaðið.
Örn bendir á að honum – og eflaust mörgum öðrum – þætti súrt í broti ef hann ætlaði að innleysa gjafabréf fyrir einni flösku í Vínbúðinni og upplifa að kassastarfsmaðurinn gúlspopa niður í hálfa flösku áður en hann hleypti honum út.
„Einu alvörugjafakortin eru í raun Bandaríkjadollarar sem breyta má í verðmæti alls staðar í heiminum. Nú vil ég koma því á framfæri að hvað mig varðar þá eru blóm, kransar og gjafabréf afþökkuð en þeim sem vilja gleðja mig bent á bágstadda. En kannski voru gjafakort mömmu frá Borgarleikhúsinu ógalin og slungin leið hjá henni til að láta muna eftir sér um ókomna framtíð. Að minnsta kosti kemur sú gamla alltaf ljóslifandi upp í hugann þegar ég sé þessi gjafakort.“
Í skilmálum um gjafakort sem finna á má á vef Borgarleikhússins kemur fram að almenn gjafakort renni út fjórum árum eftir útgáfudag sem skráður er á kortið.
„Ef um er að ræða gjafakort sem hefur ekki útgáfudag þá samsvarar inneign kortsins miðaverði þegar kortið var keypt. Ef miðaverð hefur hækkað milli leikára, eða gjafakort notað á sýningu með hækkuðu miðaverði, eins og söngleiki, þarf að greiða mismuninn.“