fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Tíu í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnainnflutnings – Fíkniefnamál orðin 58 í ár á Suðurnesjum

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. október 2023 13:37

Lögreglan á Suðurnesjum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðasta ári rannsakaði lögreglan á Suðurnesjum 69 mál vegna smygls á fíkniefnum, peningaþvættis og flutningi á reiðufé úr landi.  Það sem af er þessu ári eru málin orðin 58. Í þessum málum voru sakborningar handteknir á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins eða handteknir vegna gruns að vera með illa fengið fé á leið úr landi.  

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að lagt hefur verið hald á 65 kg af kókaíni, 14.000 töflur af oxycontin, 1.800 töflur af contalgin, 100 kg af kannabis, amfetamínbasa og önnur efni sem bönnuð eru hér á landi.   Um 60 milljónir króna í reiðufé hafa verið haldlagðar í aðgerðum tollgæslu og lögreglu.  Tolleftirlit í komusal flugstöðvar hefur reynst árangursríkt.  Það er síðan í höndum lögreglu að rannsaka mál áfram og leiða í gegnum dómskerfið.   Þessu tengt þá sátu 80 menn í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum árið 2022 í samtals 2.903 daga, eða að jafnaði 8 menn á dag, alla daga ársins.  Í ár er talan komin í 96, samtals 2.617 dagar, eða um 10  menn á dag það sem af er ári.  Í dag sitja 10 menn í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á fíkniefnum.

Aldrei hefur fleiri farþegum verið vísað frá landinu á Keflavíkurflugvelli við komu þeirra til landsins.  Flestir þeirra eru þriðja ríkisborgarar sem koma hingað með flugi frá öðru Schengen ríki.  Nú eru 258 frávísunarmál skráð það sem af er ári.  Í tilkynningunni kemur fram að þetta séu tölur sem ekki hafi sést áður, breytt verklag og skipulag löggæslu á flugvellinum hafi eflaust breytt hér miklu ásamt góðu samstarfi við tollgæslu.  Ástæður frávísana geta verið margar en þar fer mest fyrir frávísunum einstaklinga frá landinu vegna tengsla þeirra við brotastarfsemi.

Mikilvægt er að starfsemi lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli sé öflug og vel þjálfaður mannskapur sé til staðar auk nauðsynlegs tækjabúnaðar og viðunandi starfsaðstöðu.   Samstarf Evrópuríkja á sviði lögreglusamstarfs og landamæraeftirlits sem byggist á Schengen samningnum er gríðarlega umfangsmikið og krefjandi ekki síst fyrir Ísland svo fjarri meginlandi Evrópu.  Íbúar á Schengen svæðinu eru yfir 400 milljónir.  Þeim er heimilt að fara yfir innri landamæri Schengen-svæðisins án þess að landamæraeftirlit fara fram, án tillits til ríkisfangs. Samkvæmt lögum um landamæri er fyrirtækjum sem annast flutning farþega til og frá landinu skylt að afhenda lögreglu upplýsingar um farþega og áhöfn.  Þá er lögreglu heimilt að safna og skiptast á upplýsingum um farþega og áhöfn við tollyfirvöld í þágu eftirlits  og greiningarstarfs eða vegna rannsókna á ætluðum brotum.  Flest flugfélög veita umbeðnar upplýsingar þar á meðal íslensku flugfélögin.  Þó eru flugfélög sem fljúga hingað reglulega sem veita ekki þessar upplýsingar og komast upp með það.  Tollayfirvöld geta lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn skyldu til að veita umbeðnar upplýsingar.   Lögregla veit ekki til þess að það hafi verið gert.  Brýnt er að koma þessu í lag.  Lög bjóða ekki annað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði

Pétur Jökull verður dreginn fyrir dóm í ágústmánuði
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill