Maður að nafni Sigurður Smári Ólafsson var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefna og vopnalagabrot. Í fórum hans fundust 20 tegundir af fíkniefnum, kylfa, raflostbyssa og fleira.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákærði Sigurð þann 20. júní síðastliðinn. En í hans fórum fundust bæði fíkniefni og sterar af ýmsum toga sem og vopn.
Um er að ræða tæplega 600 grömm af amfetamíni, tæplega 800 grömm af kannabislaufum, rúmlega 500 grömm af kannabis og um 35 grömm af kókaíni. Þá fannst einnig sitthvað af MDMA, oxandrolon, stanozolol, metenolon, nadrolon, trenbolon, tamoxifen, methylphenidate sandoz, deca-durabolin, primobolan, anastrozol, clenbuterol og slatti af sterum.
Auk þess voru gerð upptæk ýmis áhöld til neyslu og sölu efnanna. Svo sem vigtir, blandari, smellulásapokar, brúsar með ræktunarvökva, sprautupennar, handpressa, límmiðar, glös, tappar og fleira.
Vopnin sem fundust í fórum Sigurðar voru raflostbyssa, kylfa og piparúðabrúsi. Voru þau einnig gerð upptæk.
Sigurður játaði brot sín við fyrirtöku málsins í héraðsdómi þann 13. september án undandráttar og samþykkti upptökukröfuna. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.
Við refsiákvörðun var litið til þess að hann á stuttan sakaferil að baki. Eina brotið á sakavottorðinu var dómur frá maí á þessu ári við sama dómstól þar sem Sigurður var dæmdur fyrir umferðarlagabrot, vörslu fíkniefna og vopnalagabrot. Hins vegar voru brotin nú framin áður en honum var síðast gerð refsing og beri því að dæma hann til hegningarauka.
„Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði hefur játað brot sitt án undandráttar. Á hinn bóginn er einnig tekið mið af því að ákærði hafði í vörslum sínum umtalsvert magn fíkniefna, lyfja og vopna,“ segir í dóminum.
Þá var litið til þess að málið hafði dregist mjög mikið, það er rannsókn þess og útgáfa ákæru. Var því ákveðið að skilorðsbinda dóminn.
Eins og áður segir hlaut Sigurður eins árs dóm. Einnig er honum gert að greiða tæplega hálfa milljón króna í málsvarnarlaun og sakarkostnað. En stærstur hluti af því fór í magngreiningar efnanna hjá Háskóla Íslands.